154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

afstaða stjórnvalda í utanríkismálum.

[15:22]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að láta verða af því að lesa upp úr ræðu fulltrúa okkar á allsherjarþinginu, með leyfi forseta. (Gripið fram í.) Þar er ágætt að grípa þar niður vegna þess að það var eiginlega bara nákvæmlega það sem hv. þingmaður var að lesa upp. Og hvað sagði í yfirlýsingunni, með leyfi forseta:

„Við verðum að brjótast út úr þessum vítahring ofbeldis og vinna að varanlegri pólitískri lausn. Alþjóðlegu viðmiðin fyrir sjálfbæra langtímalausn deilunnar eru skýr: Tveggja ríkja lausn sem byggir á alþjóðalögum, þar sem Ísrael og Palestína búa hlið við hlið í friði og öryggi og við gagnkvæma viðurkenningu.“

Í þessari yfirlýsingu er sömuleiðis kallað eftir því að það verði gert mannúðarhlé á átökunum. Mjög skýrt. Þannig að efnislegi ágreiningurinn sem hv. þingmaður er að kokka hér upp er ekki til staðar. (Gripið fram í: Segðu þingflokki VG það.)