154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

utanríkisstefna stjórnvalda.

[15:23]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég held að hugur okkar allra sé fyrir botni Miðjarðarhafs, það er einfaldlega ekki annað hægt. Að miklu leyti finnst mér líka dapurlegt að sjá ákveðið máttleysi alþjóðasamfélagsins birtast okkur og þá skiptir auðvitað máli að þjóðir heims standi þétt saman í jafn alvarlegu máli og þessu sem er að gerast fyrir botni Miðjarðarhafs og það verði allt gert til þess að stöðva blóðbaðið. Íslensk stjórnvöld stóðu frammi fyrir þeirri risastóru ákvörðun í síðustu viku að styðja eða styðja ekki ályktun Sameinuðu þjóðanna um mannúðarhlé. Ísland sat hjá. Viðreisn hefði alltaf stutt báðar tillögur. Í kjölfarið hófst atburðarás sem að mínu mati var íslenskri þjóð ekki til mikils sóma. Þjóðin horfði upp á forsætisráðherra og utanríkisráðherra landsins þræta um það fyrir opnum tjöldum hver skrifaði tölvupóst og hvenær og hvenær hann var lesinn, hvort sem það voru 11 mínútur eða 56 mínútur eða einn og hálfur tími eða hvað það var sem klukkan sló. Það var grátlegt að verða vitni að því að forystufólk í ríkisstjórninni gæti ekki hreinlega komið sér saman um afstöðu íslenskra stjórnvalda af því að þau voru innbyrðis ósammála. Og þau sem voru búin að fara til Þingvalla og finna erindi sitt. Það entist í tvo daga. Í staðinn fyrir að rífast um tölvupósta þá fengum við ekki — eða það var greinilegt að það var ekkert talað við formann Framsóknarflokksins, það er greinilega að verða einhver lenska hjá þessari ríkisstjórn, og það var ekki haft samband við utanríkismálanefnd þingsins. Það var ekkert gert til þess að ná samstöðu hér í þinginu í jafn alvarlegu máli og við og heimurinn stöndum frammi fyrir. Ég er dálítið döpur yfir því hvernig stjórnvöld hafa farið með vald sitt í þessu máli og ég vil líka minna á að þetta er ekki eitthvað stjórn og stjórnarandstaða; þingflokkur Vinstri grænna ályktaði mjög skýrt. Það er ákall um að við bregðumst rétt og skynsamlega við og þá þýðir ekki að fara í einhverjar skotgrafir.

Þessi samskipti upplýstu mjög mikið um ákveðin fálmkennd vinnubrögð, (Forseti hringir.) brotakennd vinnubrögð varðandi stjórnsýsluna þegar kemur að utanríkisstefnunni og því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvað hefur ráðherra lært af þessu og hvernig ætlar hann að beita sér fyrir því að við náum sem mestri samstöðu líka hér innan lands?