utanríkisstefna stjórnvalda.
Virðulegur forseti. Mér finnst dapurlegt að hlusta á hæstv. utanríkisráðherra, að hann komi ekki hingað upp og segi: Við verðum að gera betur þegar kemur að stjórnsýslunni. Það er ekki bara það að allir hér innan lands sjái þessi innanmein ríkisstjórnarinnar, allt alþjóðasamfélagið sér það núna að stjórnsýslan hér er brotakennd. Og það er mikið tjón.
Ég vil hins vegar segja það, af því að frumkvæði hefur ekki komið frá ríkisstjórninni af því að hún er sundruð í þessu máli, að Viðreisn ætlar hins vegar að leggja fram þingsályktunartillögu í dag sem verður vonandi rædd seinna í vikunni, efnislega þá sömu og Kanada lagði fram á allsherjarþinginu sem allar þjóðir Evrópu studdu, um að Alþingi fordæmi hryðjuverkaárásir Hamas á almenna borgara í Ísrael og árásir Ísraelshers gegn almennum borgurum og á borgaralega innviði á Gaza í kjölfarið.
Réttur Ísraels til að verja sig er ótvíræður en hann er ekki takmarkalaus. Við viljum að Alþingi kalli eftir tafarlausu mannúðarhléi, að gíslum í haldi Hamas verið sleppt, að Ísland beiti sér samhent fyrir því að mannréttindi séu virt svo að almennir borgarar geti búið við frið frá átökum. Þessu viljum við (Forseti hringir.) beita okkur fyrir. Samtalið hefur hins vegar ekki komið frá ríkisstjórninni því að hún er upptekin (Forseti hringir.) við innanmein við ríkisstjórnarborðið.