154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

fordæming stríðsglæpa á Gaza og mannúðarhlé.

[15:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef sagt það mjög skýrt að við séum með skýrar vísbendingar um að mannúðarlög séu brotin, m.a. með því að það er komið í veg fyrir að nauðþurftir berist inn á neyðarsvæði. Ég veit ekki hvernig gæti verið skýrari með þetta atriði. Ég er sömuleiðis búinn að vera mjög skýr allan tímann um að við veitum engan afslátt á því að það beri að virða alþjóðalög. Í því felst m.a. að margt af því sem við höfum séð getur ekki flokkast öðruvísi en að menn hafi gengið allt of langt miðað við það að menn eru að bregðast við þeirri árás sem varð hér 7. október, það eru sömuleiðis brot sem beri að rannsaka og eigi að hafa afleiðingar. Ég held að ég geti ekki verið mikið skýrari með þessa hluti og ef hv. þingmaður heldur að ég sé kominn hingað upp til þess að verja það sem við erum að horfa á í fréttum þá verð ég að valda honum vonbrigðum.

Ég hef hins vegar töluvert miklar áhyggjur af því hvernig umræðan um þessi mál er. Maður verður var við mjög mikla skautun, það verður ákveðin pólarísering í umræðunni. Ég tek eftir því að hv. þingmaður minnist sérstaklega á árásirnar sem skæruliðar gerðu og Hamas og taldi upp mannfallið og gíslatökuna og ég hef reynt að gera það sömuleiðis, að halda því samhengi hlutanna til haga í umræðu um þessi mál. En ég finn að það er gríðarlega viðkvæmt og ég skil að það sé mjög viðkvæmt, ég skil það bara mjög vel vegna þess að við erum öll að kalla eftir því að átökunum linni. Ég er í þeim hópi líka. Ég hef engan áhuga á því, ef einhver heldur það, að sjá átök halda áfram á þessum svæðum. (Forseti hringir.) Þannig að ég tel að það séu komnar slíkar vísbendingar nú þegar, þannig að ég sé skýr með svarið, og ég ítreka kröfu íslenskra stjórnvalda (Forseti hringir.) um að það sé gert mannúðarhlé á þessum átökum, lífum bjargað með því og nauðþurftum komið til þeirra sem á þurfa að halda.