fordæming stríðsglæpa á Gaza og mannúðarhlé.
Virðulegi forseti. Ég hef margoft sagt að við fordæmum öll brot á alþjóðalögum. Það hef ég margoft sagt. Ég ætla að beina orðum mínum aftur í þennan farveg sem ég var að gera hérna áðan, að ég held að það færi betur á því hérna í þinginu að menn gerðu tilraun til þess að stilla saman strengi á Alþingi Íslendinga í stað þess að vera að leggja hér fram hverja þingsályktunartillöguna á fætur annarri, gegn hver annarri og sundra þingliðinu í marga hópa um orðalag. Ég held að við gerum lítið gagn með því sem þjóðþing. Ég tel að hitt sé miklu farsælla og ég tel að það sé miklu líklegra að kröftum okkar sé betur varið í að sameinast um afstöðu, sem ég finn engan grundvallarmun á hér í þinginu, og koma henni þá á framfæri skilmerkilega frá Alþingi Íslendinga.