154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

stöðumat vegna COP28.

[15:53]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Seinna í þessum mánuði hefst þing aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Það er hið 28. í röðinni og gengur í daglegu tali undir nafninu COP28.

Eins og við öll vitum hefur ríkisstjórn Íslands sett sér markmið um að ná svokölluðu kolefnishlutleysi árið 2040 og samtals 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda eigi síðar en 2030. Þangað til eru rétt rúmlega sex ár þannig að tíminn líður hraðar en nokkurn órar fyrir í þessu samhengi. Við vitum líka að útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur aukist frá allri starfsemi hér á landi, með svolitlum samdrætti vegna heimsfaraldursins.

Á COP28 á í fyrsta sinn að birta og lýsa svokölluðu stöðumati, „Global Stocktake“ heitir það á ensku, þar sem hvert einasta aðildarríki samningsins lýsir stöðunni heima fyrir. Þannig næst vonandi sem best yfirsýn yfir það hvar við stöndum með tilliti til þeirra markmiða sem við öll ríki heims skuldbundum okkur til að ná í París árið 2015.

Mig langar af þessu tilefni, og vegna þess að það líður að upphafi COP-sins, að inna hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eftir því hvað líði vinnu við þetta stöðumat, hvar það verði kynnt og hvernig það verði í raun „presenterað“ á fundinum sem fram fer núna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.