154. löggjafarþing — 22. fundur,  6. nóv. 2023.

stöðumat vegna COP28.

[15:56]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þar sem hv. þingmaður er hér að vísa til er auðvitað frekar stórt mál sem ég myndi vilja að við myndum ræða meira hér í þinginu því að það er svolítil upplýsingaóreiða þegar kemur að þessum málum. Til dæmis gefa fullyrðingar um það að útblástur hafi aukist kannski ekki alveg rétta mynd vegna þess að við erum að vinna með öðrum þjóðum eftir ákveðnu fyrirkomulagi og þetta eru í rauninni þrjú bókhaldskerfi og það skiptir mjög miklu máli að menn ræði þetta út frá því. Af hverju eru þau þrjú? Það er ákveðin hugmyndafræði á bak við það. Í fyrsta lagi ETS-kerfið. Þar erum við með stóriðjuna, millilandaflugið og millilandasiglingarnar og þar erum við með öðrum EES-ríkjum. Af hverju eru þau þar? Vegna þess að þetta er alþjóðlegt. ETS-ið fór t.d. mjög niður hjá okkur Íslendingum þegar WOW fór á hausinn. Ég efast um að það hafi haft mjög mikil áhrif hins vegar á útstreymi gróðurhúsalofttegunda á því svæði sem við erum á í heiminum, ég er eiginlega alveg viss um að það var ekki. Hugsunin er sú að hvert fyrirtæki sé á jafnræðisgrundvelli inni á þessu svæði og síðan fá menn þar úthlutað kvóta, ekkert ósvipað eins og er í aflamarkskerfinu og það er í rauninni eitt af því sem byggt er á. Síðan eru framseljanlegir kvótar á því hvort sem menn minnka losun eða auka meira o.s.frv. Svo erum við með það sem mér finnst vanta augun á og það er það sem er á beinni ábyrgð Íslands, ESR-kerfið eða samfélagsábyrgðin. Þar liggur okkur á því þar eru ákveðin markmið fyrir 2030 og við höfum verið að vinna að aðgerðaáætlun og aðlögunaráætlun núna í mjög langan tíma og ég vonast til þess, og það tengist svo sannarlega matinu okkar, að það verði tilbúið sem fyrst. En það hefur tekið langan tíma vegna þess að þetta er ekki eitthvað sem stjórnvöld geta gert ein. Aðrar þjóðir voru komnar lengra, voru búnar að vinna þetta með hverjum geira atvinnulífsins fyrir sig og það er það sem við erum búin að gera. Ég vonast til þess að um leið og þetta er tilbúið, það er komið mjög langt á veg, þá getum við rætt þetta — og ekkert vonast til þess, ég rétt leyfi mér að vona að við ræðum þetta hér í þinginu og förum yfir þessa þætti.