stöðumat vegna COP28.
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hæstv. ráðherra að það er mjög brýnt að við ræðum þessi stóru mál oftar á þingi. Auðvitað er það líka rétt að þessi ólíku bókhaldskerfi geta reynst flókin fyrir umræðuna en það er hins vegar einfalt að ræða um það sem er á beina ábyrgð Íslands og hvert við erum komin hvað það varðar. Mér er kunnugt um að það er verið að uppfæra aðgerðaáætlun og aðlögunaráætlun hefur líka verið kynnt, en það sem mig langar að vita er þetta: Hvar stöndum við með tilliti til þess sem er beðið um að við mætum með til Dúbaí? Það er talað um stöðumat hvers einasta ríkis; hvernig munum við skila því og getum við á COP28 sýnt fram á bæði nauðsynlegan árangur með tilliti til Parísarsamkomulagsins og einnig að við getum náð þeim markmiðum sem við höfum sett okkur, bæði árið 2030 og 2040?