fundur aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnavopnum.
Virðulegi forseti. Við höfum ekki hug á því að taka þátt í þessum fundum en við höfum þennan möguleika auðvitað að hafa áheyrn. Eins og ég rakti hér áðan þá er það því miður þannig að það er ekki hægt að sjá fyrir sér hvernig það færi saman með skuldbindingum okkar í Atlantshafsbandalaginu að taka undir bannsamning. En þetta eru ágætissjónarmið sem hv. þingmaður rekur hérna og ég hef almennt verið talsmaður þess að eiga samtalið frekar en að hunsa það þannig að ég tek þessi skilaboð með mér inn í nýtt embætti.