154. löggjafarþing — 23. fundur,  6. nóv. 2023.

þróunarsamvinna og réttindabarátta hinsegin fólks.

361. mál
[16:29]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessar góðu ábendingar og hvatningu í þessum málaflokki. Ég þakka hv. frummælanda fyrir framsögu hennar og þessar áherslur sem hún hefur talað fyrir í dag. Varðandi stuðning við einstaka félagasamtök þá vísa ég til þess sem ég sagði í minni ræðu, þ.e. að við teljum það almennt mjög farsæla og góða leið og leitumst eftir því að eiga gott samstarf við slíka aðila. Ég tel að það sé líka bæði skilvirk og mjög skjótvirk leið en geri bara þennan almenna fyrirvara sem ég vakti máls á áðan, að það getur í einstaka tilvikum verið snúið í einstökum ríkjum, eins og á við t.d. í Úganda í ljósi þeirrar lagasetningar sem þar er komin. Þá reynum við að fara leiðir sem geta skilað sama árangri og erum sveigjanleg eftir þörfum. Ég er ánægður að heyra samhljóm í þinginu með þessum helstu áherslum og við komum kannski frekar inn á þetta þegar við ræðum stefnuna til næstu ára.