úthlutun byggðakvóta.
Frú forseti. Byggðakvóta er ætlað að leiðrétta hlut þeirra byggða sem hafa orðið fyrir hvað mestum skakkaföllum vegna áhrifa kvótakerfisins og samþjöppunar veiðiheimilda. Nú sýna nýleg gögn sem komu sem svar við fyrirspurn minni til matvælaráðherra að um 50 aðilar eiga um 50% kvótans. Við höfum einnig séð að fjölmörg sveitarfélög hafa á undanförnum árum og áratugum, síðan kvótakerfinu var komið á, tapað kvóta og þá oft vinnslu og störfum. Þessi sveitarfélög eiga mjög erfitt með að byggja sig upp aftur og því miður er það þannig að brothættum byggðum er að fjölga en ekki fækka eins og hefði átt að vera. Þess vegna hef ég lagt fram eftirfarandi fyrirspurn: Telur ráðherra að almenn ánægja ríki með það fyrirkomulag sem er á úthlutun byggðakvóta, sérstaklega í ljósi þess að 69 kærur voru lagðar fram vegna almenna byggðakvótans og níu vegna sértæka byggðakvótans á tíu ára tímabili? Ef svo er ekki, hvernig hyggst ráðherra bæta fyrirkomulag úthlutunar byggðakvóta?