154. löggjafarþing — 23. fundur,  6. nóv. 2023.

úthlutun byggðakvóta.

265. mál
[16:40]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Sú leið sem hefur haft þessa yfirskrift, innviðaleiðin, snýst um það hvaða markmið það eru sem löggjafinn síðan ákvarðar í sinni þinglegu meðferð, hvort það eru þeir sem fá hæst verð fyrir heimildirnar eða ef það eru önnur markmið sem lögð eru til grundvallar, og þetta á eftir að útfæra. En í raun og veru erum við með þessari nálgun að horfa til þess að það sem fæst fyrir heimildirnar fari sannarlega til byggðanna. Mörgum sveitarfélögum hefur fundist þetta spennandi nálgun vegna þess að þarna erum við þá ekki að festa okkur við þá hugsun að sjávarútveginum sé ætlað að tryggja dreifða byggð í landinu heldur sé hann bara einn af mörgum þáttum sem hafi áhrif á það og að sveitarfélög sem hafa áhuga á því að byggja upp sína framtíð eða atvinnutækifæri, eða einhvers konar tækifæri fyrir íbúa sína til vaxtar og mögulega áherslubreytinga geti gert það fyrir þá fjármuni sem þarna falla til. Þarna fái sveitarfélögin í raun og veru meira svigrúm en ella væri og ákveðið frelsi líka til að þróast með þeim hætti sem íbúarnir kjósa á hverjum tíma. Það er alveg ljóst, eins og hv. þingmaður náttúrlega bæði veit og skilur og kemur fram í tilefni fyrirspurnarinnar, að leiðin þangað til við erum komin að þeirri niðurstöðu að samþykkja slíka útfærslu hér í þinginu er vörðuð mjög mörgum sjónarmiðum sem toga nánast í allar áttir. En ég held að það breyti því ekki að það hermir upp á okkur hér í þinginu að finna út úr því með hvaða hætti þessi upprunalegu markmið haldist eins vel (Forseti hringir.) og hægt er, þ.e. að þessar heimildir séu hugsaðar til að styðja við atvinnu og byggð í landinu.