154. löggjafarþing — 23. fundur,  6. nóv. 2023.

vinnsla jarðefna af hafsbotni.

430. mál
[16:53]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Við höfum núna, eins og hv. þingmaður hefur væntanlega fylgst með, verið að undirbyggja með skýrslu sérstaka stefnumótun fyrir Ísland í lagareldi, þar með talið er kafli sem fjallar um þörungaeldi og úthafseldi raunar þar sem verið er að snerta á þessum málum og nefnt er þar mikilvægi þess að horfa til þeirrar nýtingar sem er að koma úr ýmsum áttum, ef svo má segja, og lögð áhersla á það að við förum ekki of geyst í þessum efnum. Ég vil árétta það sem kom fram hér í mínu fyrra svari að matvælaráðuneytinu hefur ekki borist neitt erindi hvað varðar þau mál eða þau áform Norðmanna sem þingmaðurinn fer hér yfir. En það er jafn ljóst að Norðmenn eru auðvitað fullvalda þjóð og þurfa eins og aðrir að gæta að sjálfbærri nýtingu og ábyrgri umgengni eins og gefur að skilja. Ég þakka hins vegar hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ábendinguna og mun kanna þessi mál nánar.