154. löggjafarþing — 23. fundur,  6. nóv. 2023.

skipulögð brotastarfsemi.

323. mál
[18:04]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem tók hér til máls. Það hafa auðvitað verið uppi fordæmalausar aðstæður í Svíþjóð og yfirvöld í nágrannalöndum hafa lýst yfir stuðningi og boðið fram aðstoð. Við höfum sem betur fer enn þá lítið fram að færa í þessum efnum en það er mikilvægt að við fylgjumst vel með þróuninni, skoðum það rækilega hvort við getum dregið lærdóm af þessari alvarlegu stöðu og óheillaþróun hjá þessari vinaþjóð okkar og það sama á við um önnur nágrannaríki okkar.

Hæstv. ráðherra lýsti hér ófagurri mynd af þeirri þróun sem hefur átt sér stað hérlendis og haldi hún áfram er myndin sem hæstv. ráðherra lýsir síst skárri. Hæstv. ráðherra fór sömuleiðis yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til til að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi en hún lagði áherslu á mikilvægi fyrirhugaðra breytinga á lögreglulögum og var hæstv. ráðherra mjög afdráttarlaus í þessum efnum.

Hvað varðar samanburð við önnur Norðurlönd er þróunin komin lengra og til verri vegar. Hæstv. ráðherra lagði í sínu máli áherslu á þekkingar- og reynsluskipti og að efla samstarf og samvinnu og ég get mér til um að hæstv. ráðherra eigi m.a. við heimildir sem munu fást ef í gegn fara fyrirhugaðar breytingar á lögreglulögum.

Það væri áhugavert að heyra frekar frá hæstv. ráðherra hvað við getum gert í auknu samstarfi við þessar nágranna- og vinaþjóðir okkar.