154. löggjafarþing — 23. fundur,  6. nóv. 2023.

skipulögð brotastarfsemi.

323. mál
[18:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Á síðustu árum hafa skýrar vísbendingar komið fram um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópur innlendra jafnt sem erlendra aðila hefur það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulögðum hætti. Þetta eru t.d. alvarleg ofbeldisbrot, þjófnaður, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Þetta er verulegt áhyggjuefni. Eðli skipulagðrar brotastarfsemi er að hún er alþjóðleg og gengur þvert á landamæri. Stjórnvöld hérlendis hafa lagt mikla áherslu á samstarf og samvinnu, bæði alþjóðlega og innan lands, og ég tel nauðsynlegt að styrkja þetta samstarf enn frekar ásamt því að efla innlenda löggæslu til muna. Það verður ekki einungis gert með breytingum á löggjöf heldur einnig auknum fjárveitingum á þessu sviði. Íslensk laga- og stofnanaumgjörð á þessu sviði er ekki fyllilega sambærileg þeirri sem þekkist annars staðar á Norðurlöndunum og lagaheimildir lögreglu eru takmarkaðri hér á landi samanborið við nágrannaríkin, einkum að því er varðar öryggi ríkisins. Að mínu mati er mikilvægt að samræma valdheimildir lögreglu hér á landi við valdheimildir lögreglu í nágrannaríkjum okkar og líta til reynslu þeirra af baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Sú þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum varðandi umfang skipulagðrar brotastarfsemi, bæði á Íslandi og á alþjóðavísu, er alvarleg. Halda þarf áfram að styrkja lögregluna, þekkingu hennar og getu til að takast á við mál af þessu tagi. Ég sem dómsmálaráðherra mun nálgast viðfangsefnið af festu og ábyrgð. Markvissar aðgerðir til að varna afbrotum eru grundvallaratriði til að halda uppi allsherjarreglu og lögum í landinu.