Sameining framhaldsskóla.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að taka þátt í þessari umræðu í dag. Síðasta vor áttum við samtal um þetta sama efni í kjölfar þess að ráðherrann kynnti sameiningaráform Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri; Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund; Flensborgarskóla í Hafnarfirði og Tækniskólans; og Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis. Í þessari upptalningu eru nokkrir af rótgrónari skólum landsins; skólar sem kenna iðngreinar, skólar með bekkjakerfi, skólar með áfangakerfi, skólar með nýjar og fjölbreyttar námsleiðir og skólar með sterk tengsl við atvinnulífið.
Eins og ég kom inn á í umræðunni síðasta vor er að finna í þessum breiða hópi ólíkra menntastofnana ólíka menningu, ólíkan skólabrag og ólík tengsl við nærumhverfi sitt. Við það má svo bæta ólíkum áhuga nemenda sem sækja nám eftir því hvar áhuginn liggur og, það sem skiptir máli, hvers konar skóla er um að ræða. Þetta eru þeir þættir sem verða seint sameinaðir og útkoman væri þess vegna nýir skólar með nýjar áherslur til góðs eða ills.
Eins og við þekkjum urðu í kjölfar þess að áformin voru kunngjörð heilmikil mótmæli frá nemendum, starfsfólki og velunnurum skólanna, enda virtust áformin koma flestum á óvart. Yfirskriftin var að kanna sameiningar framhaldsskóla til að mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum sem framhaldsskólarnir stóðu frammi fyrir, eins og fram kom í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu síðastliðið vor. Umræðan hefur engu að síður verið óljós og meira hverfst um líðan nemenda í skólum og eflingu náms, sér í lagi verknáms. Þrátt fyrir það virðast þau sjónarmið hafa orðið ofan á að sameiningar snúist fyrst og fremst um fjármagn og það er miður. Engu að síður, hafandi setið í fjárlaganefnd lengi, veit ég að einstaka framhaldsskólar þurfa sannarlega á auknu fjármagni að halda og við því þurfum við að bregðast.
Ég fagna sannarlega aukinni umræðu um framhaldsskólastigið. Ég hefði þó frekar viljað að hún beindist í auknum mæli að þeim áskorunum sem þeir skólar standa frammi fyrir fremur en að snúast um sameiningar. Fjölgun nemenda, brottfall og hlutfallslega fáir nemendur sem sækja verknám í samanburði við nágrannaríkin eru allt áskoranir sem við glímum við. Svo þekkjum við líka þá miklu áskorun sem fylgir fjölbreytileikanum og fjölgun nemenda í skólakerfinu öllu sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli, og þeim mun fjölga enn meira á komandi árum. Óhjákvæmilega fylgja þessu öllu saman áskoranir með tilliti til tungumála og líka útgáfu námsefnis.
Því er sannarlega rétt að það þarf að skoða stöðu framhaldsskólanna, en það þarf að gera í stærra samhengi en með áformum um sameiningar einstakra skóla. Sömuleiðis er mikilvægt, sér í lagi þegar lagt er af stað með hugmyndir sem umbylta starfsemi rótgróinna menntastofnana, að stefna stjórnvalda sé skýr og að öll séu með í ráðum strax í upphafi, af því að ég trúi því að við viljum allflest standa vörð um fjölbreytt nám í framhaldsskólum. Sérstaða skóla og frelsi nemenda til að velja sér framhaldsskóla og velja nám út frá eigin áhugasviði og markmiðum skiptir gríðarlega miklu máli og er í raun lykilþáttur í framþróun menntakerfisins.
Að þessu sögðu lagði ég eftirfarandi spurningar fyrir ráðherrann og vil inna hann eftir því hvar vinnan stendur við þessi sameiningaráform sem hér hafa verið rakin og voru tilkynnt síðastliðið vor, því að eftir því sem umræðunni um sameiningar vindur fram hafa þau rök komið fram að fjármagnsskortur sé meginástæða þess að verið sé að skoða sameininguna, þrátt fyrir að áformin byggi á skipun stýrihóps um eflingu framhaldsskóla sem hafði það verkefni að móta aðgerðir til að ná markmiðum menntastefnu stjórnvalda til 2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að efla iðn- og starfsnám og raungreinanám. Telur ráðherra þarft að sameina skólana til að ná umræddum markmiðum ef nægilegt fjármagn fæst til rekstursins að hans mati? Telur ráðherra að áform um sameiningar framhaldsskóla muni tryggja fjölbreytileika og valfrelsi ungs fólks í námi? Hvernig sér ráðherrann fyrir sér að auka fjölbreytileika í námi samhliða því að samþætta iðn-, verk- og bóknám undir eina stofnun? Þá kannski getum við verið að tala um þær stofnanir sem ólíkar eru. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að takast á við helstu áskoranir á framhaldsskólastiginu ef ekki kemur til sameiningar? Ég vonast svo sannarlega eftir málefnalegri og góðri umræðu í dag.