154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

Sameining framhaldsskóla.

[14:26]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Samkvæmt menntamálaráðherra eru áform um sameiningu framhaldsskóla liður í því að fylgja eftir menntastefnu stjórnvalda til 2030. Í markmiðatexta menntastefnunnar er tekið fram að skýr stefna um forgangsröðun í þágu menntunar og þekkingarsköpunar auki lífsgæði og verðmætasköpun. En nú hefur ráðherra sjálfur viðurkennt að áform um sameiningu byggist á þeim fjármagnsskorti sem blasir við málaflokknum. Ríkisstjórnin er því greinilega ekki að forgangsraða í þágu menntunar og þekkingarsköpunar og er því verulega óheiðarlegt að setja áform um sameiningu framhaldsskóla í búning þess að fylgja eftir menntastefnu og efla farsæld barna, eins og kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Áform um sameiningu eru augljóslega ekki á forsendum farsældar barna, enda er ráðherra ekki að vinna þessar hugmyndir á faglegum forsendum og alls ekki í samráði við helstu hagaðila. Áform um sameiningu framhaldsskóla eru einhvers konar skítamix, afsakið forseti, sem er farið í vegna þess að ráðherra fær ekki nægilega mikinn pening frá fjármálaráðuneytinu til að sinna málaflokknum en ekki vegna þess að þetta sé svo frábær hugmynd fyrir börnin og framtíð menntakerfisins. Það er augljóst, ráðherra hefur sjálfur viðurkennt það.

Forseti. Við erum að horfa fram á gífurlegar samfélagsbreytingar og í stað þess að vera að sameina skóla til að spara peninga þá ættum við að vera að tala hérna um hvernig við getum stóreflt menntakerfið og fjölbreytileikann innan þess. Það er svo margt sem við þurfum að skoða upp á nýtt þegar kemur að menntakerfinu ef við setjum það í samhengi við þær gríðarlegu samfélagsbreytingar og tæknibreytingar sem eru að eiga sér stað. Við þurfum að aðlaga menntakerfið að breyttu samfélagi. Það ætti að vera fókusinn, forseti, ekki hvernig við getum farið í einhverjar skaðaminnkunaraðgerðir af því að ríkisstjórnin er ekki nægilega framsýn til að átta sig á mikilvægi þess að setja nægilegt fjármagn í menntakerfið. Það er þannig sem við tryggjum farsæld barnanna, með því að efla menntakerfið en ekki veikja það. Það er þannig sem við mætum framtíðinni.