154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

Sameining framhaldsskóla.

[14:29]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Til að sameining rekstrareininga teljist vera af hinu góða þarf tvennt að koma til, þ.e. að gæði þjónustu haldi sér eða aukist og að rekstrarleg hagræðing náist. Oft hefur verið farið af stað án þess að það sé fyrirséð að þessi tilteknu atriði náist og mér er það til efs að þau muni gera það í þessu tilfelli sem hér um ræðir. Það er eins og það ríki þögn á ríkisstjórnarfundum enda virðast þau mál sem fram koma frá ráðherrum þessa dagana vera í bullandi ágreiningi og ekki er fyrirséð hvernig þeim reiðir af. Þetta er eitt af þeim málum, þ.e. sameining framhaldsskóla víðs vegar á landinu.

Af því að Sjálfstæðismenn hafa tekið að sér að standa gegn sameiningunni fyrir norðan þá ætla ég að eyða tíma mínum í að ræða fyrirhugaða sameiningu Keilis og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Keilir var stofnaður árið 2007 eftir að herinn fór, með það að markmiði að byggja upp námsmannasamfélag á Suðurnesjum. Þarna er margt frábært að finna og sérstaða Keilis er mikil, svo sem eins og háskólabrúin sem veitt hefur fjölmörgum tækifæri til að hefja háskólanám. Menntaskólinn á Ásbrú býður síðan upp á tölvuleikjanám sem nýtur algerrar sérstöðu. Í heilsuakademíu er að finna einkaþjálfaranám og síðan nám í fótaaðgerðafræði. Sérstaða Keilis er því mikil og hætt við að margt af því sem Keilir býður upp á hverfi komi til þess að skólinn verði innlimaður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa lagt skólunum til talsverða fjármuni enda hefur Keilir haft víðtæk áhrif á Suðurnesjum þar sem menntunarstig hefur verið lágt í samanburði við aðra landshluta. Að láta Keili hverfa væru mikil mistök fyrir samfélagið á Suðurnesjum, nemendur og alla þá sem þar starfa.