Sameining framhaldsskóla.
Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að fara yfir nýliðna atburði. Í vor skipaði mennta- og barnamálaráðherra stýrihóp um eflingu framhaldsskólanna. Þessum hópi var falið að vinna með stjórnendum átta framhaldsskóla að skýrslu um kosti og galla aukins samstarfs skólanna. Hópnum var líka ætlað að hafa samráð við fulltrúa nemenda, kennara og starfsfólks skólanna og aðra hagaðila. Tveir af þeim skólum sem voru þarna undir voru Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri. Hópurinn skilaði stöðuskýrslu um forsendur sameiningarinnar sem féll víða í grýttan jarðveg. Þessi hörðu neikvæðu viðbrögð vekja eiginlega litla furðu af því að skýrslan var unnin án aðkomu almenns starfsfólks og nemenda skólanna sem um ræðir þrátt fyrir fögur fyrirheit um samráð og samvinnu. Áform ráðherra vöktu t.d. mikla reiði á meðal nemenda en þeir söfnuðu alls 677 undirskriftum þar sem sameiningunni var mótmælt og hátt í 40 nemendur keyrðu frá Akureyri til að geta afhent ráðherra listann.
Þar sem þessi fyrsti áfangi þessa stóra verkefnis fékk slæmar viðtökur, bæði frá nemendum og skólastjórnendum, umboðsmanni barna, bæjaryfirvöldum og fleirum, er gott að heyra frá ráðherranum að ætlunin sé að bakka aðeins. Ef raunverulegt markmið ráðherra er að efla framhaldsskólana er nefnilega nauðsynlegt að hann geri það á réttum forsendum og í samráði við alla aðila. Þar myndi líka hjálpa til að skilaboðin um forsendurnar og markmiðin væru skýr alveg frá upphafi og þeim miðlað rétt til allra hagsmunaaðila. Ef forsendurnar eru t.d. fyrst og fremst þrýstingur vegna aðhalds í fjárlögum frekar en alvöruefling skólanna er kannski betra að vera heiðarlegur (Forseti hringir.) með það strax í upphafi því að almennt er heiðarleiki lykilforsenda fyrir því að vinna fólk á sitt band.