Sameining framhaldsskóla.
Frú forseti. Það hafa nokkrir þingmenn komið inn á mikilvægi þess á fyrri stigum í umræðunni að betur takist til með styrkingu starfsnáms heldur en raunin hefur orðið. Það hefur verið áberandi, og hv. Bryndís Haraldsdóttir dró það ágætlega fram í ræðu sinni, hversu lágt hlutfall fer til starfsnáms á Íslandi samanborið við nágrannalönd okkar og raunar OECD-löndin í heild. Ætli það hafi ekki verið í fyrra eða hittiðfyrra sem ásóknin jókst sem betur fer umtalsvert en þá voru fréttirnar fyrst og fremst af öllum þeim hundruðum umsækjenda um starfsnám sem þurfti að víkja frá eða hafna um það nám sem viðkomandi vildi sækja vegna plássleysis og aðstöðuleysis. Ég held að það sé mikið til þess vinnandi að reyna að koma þessum málum til betri vegar.
Ég held að sömuleiðis þurfum við að setja orku í að greina hvernig tekist hefur til með styttingu náms til stúdentsprófs á sínum tíma. Hv. þm. Jakob Frímann Magnússon kom inn á það hér áðan að hann hefði skipt um skoðun, verið fylgjandi breytingunni en sé efins um hana í dag. Ég hef töluvert miklar efasemdir um að þarna hafi verið gengið til góðs en mér finnst vanta alla greiningu á því hver áhrifin hafa verið og hvernig raunverulega hefur tekist til. En það má auðvitað ekki heldur vera þannig að við sem sitjum á þingi höfum það sem sérstakt markmið að vera á móti sparnaði. Það er alveg sjálfsagt að ná fram sparnaði og hagræðingu þar sem hægt er. Síðan er það bara sjálfstæð ákvörðun hvort sá sparnaður verður látinn liggja inni í því kerfi eða þeirri starfsemi sem sparnaðurinn fellur til innan. Þannig að ég vil brýna hæstv. ráðherra til að einblína á styrkingu starfsnámsins en sömuleiðis að gera atlögu að því að greina hver árangur eða hverjar afleiðingar hafa verið af styttingu náms til stúdentsprófs sem var keyrð í gegn fyrir nokkrum kjörtímabilum síðan.