154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

Sameining framhaldsskóla.

[14:53]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir svörin og þeim þingmönnum sem hér hafa lagt orð í belg. Það er allt of sjaldan sem við ræðum menntamál á Alþingi og hefur verið þannig því miður allt of lengi þó að þörfin sé mikil, af því að skólar eru einhvern veginn gjarnan hjartað í hverju samfélagi og flestir hafa miklar skoðanir á því hvernig starfinu sem þar fer fram er háttað og fyrirkomulaginu eins og við höfum svo vel séð einmitt í umræðunni og í tengslum við þessi sameiningaráform.

Valfrelsi er mjög mikilvægt, ekki síst á þessum árum sem unga fólkið okkar sækir sér nám í framhaldsskóla. Þess vegna er mikilvægt í skólabænum Akureyri, sem varð kannski undirrótin að því að þetta samtal er að eiga sér stað hér, að þar fái þeir skólar að blómstra.

Það er rétt hjá ráðherra, eins og ég kom inn á í minni fyrri ræðu, að það eru miklar áskoranir í kerfinu, hvort sem það er einmitt að þjónusta fatlaða nemendur eða horfast í augu við það að við erum með aukinn fjölda nemenda, ekki síst af erlendu bergi brotinn, sem ekki sækir sér skóla eða er í vinnu, af því að við viljum jú auðvitað að öll geti sótt sér nám og geta stutt þau til þess.

Ráðherra sagði að kerfið væri fínt ef við ætluðum ekki að mæta þessum fjölbreytileika, annars þyrftum við að breyta. Ég skildi hann sem svo að það væri ekki endilega í því fólgið að sameina, það væri ekki það eina. Ég vona svo sannarlega að þegar ný tímalína verður kynnt þá verði fólkið sem að málinu kemur tekið með, að lærdómurinn sé sem sagt sá að skólasamfélagið verði tekið með í samtalið, hvaða leið sem við veljum að fara, því ég hef heyrt í fólki í framhaldsskólum núna sem hafði fengið boð um ákveðna fundi og veit ekki hvað bíður þess. Þess vegna tel ég mikilvægt að ráðherra taki af allan vafa um hvert framhaldið er og þá er ég ekki bara að tala um MA og VMA af því að ég tel að það þurfi líka að fara vel ofan í rekstur sumra framhaldsskólanna og hreinlega að skoða hvort þeir hafi allir notið sannmælis við úthlutun fjármagns. Ég tek undir þær spurningar sem bornar hafa verið hér fram, að ráðherra taki af allan vafa hvað þetta snertir.