vopnalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á vopnalögum, nr. 16/1998. Frumvarpið var upphaflega lagt fram á 153. löggjafarþingi en er nú endurflutt að mestu leyti óbreytt. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um skotvopn. Breytingarnar varða einkum skráningu, vörslu og eftirlit með skotvopnum en með frumvarpinu er jafnframt lagt til að innleidd verði ákvæði úr tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/555 um eftirlit með öflun og eign vopna.
Þá er með frumvarpinu einnig lagt til að ákveðnar takmarkanir verði gerðar á innflutningi á hálfsjálfvirkum og alsjálfvirkum skotvopnum með því að fella á brott úr lögunum undanþáguákvæði sem heimilað hefur innflutning á slíkum vopnum á grundvelli þess að um safnvopn sé að ræða. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá því að það var lagt fram síðasta vor eru einkum orðalagsbreytingar og frekari skýringar við einstök ákvæði, auk breytinga á refsiákvæði laganna. Þá hefur ákvæði um skotskýlingabúnað verið bætt við frumvarpið.
Með frumvarpinu er lagt til að ekki verði lengur heimilt að flytja inn alsjálfvirk og hálfsjálfvirk skotvopn á grundvelli söfnunar. Innflutningur á slíkum vopnum hefur verið undantekning frá annars skýru banni laganna við innflutningi á alsjálfvirkum og hálfsjálfvirkum skotvopnum. Er þetta lagt til í ljósi þeirrar miklu aukningar sem hefur orðið á mjög stuttum tíma á innflutningi þessara svokölluðu safnvopna. Sem dæmi má nefna voru engin slík vopn flutt inn hingað til lands á milli áranna 2012 og 2017 en frá ársbyrjun 2018 til loka árs 2021, eða á fjórum árum, voru 1.404 slík vopn flutt inn til landsins. Má í þessu sambandi vísa til þess að í skýrslum greiningardeildar ríkislögreglustjóra um hryðjuverkaógn á Íslandi hefur verið bent á þá ógn sem aukið aðgengi að slíkum skotvopnum á Íslandi hefur í för með sér.
Almennt eru reglur um innflutning safnvopna mismunandi í nágrannalöndum okkar en horft var til þeirra við gerð þessa frumvarps. Meginreglan er þó almennt sú að innflutningur slíkra vopna er bannaður en frá þeirri meginreglu eru undanþágur misstrangar. Frá og með árinu 2024 verða hálfsjálfvirk vopn bönnuð í Noregi og enginn má eiga slík vopn þrátt fyrir að hafa keypt þau löglega fyrir þann tíma.
Með frumvarpinu eru jafnframt gerð skýrari ákvæði um réttindi skotvopnaeigenda og skyldur þeirra, m.a. í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um öflun og eign vopna. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að öll skráning skotvopna verði á þann veg að ávallt sé ljóst hvaða einstaklingur sé skráður eigandi eða ábyrgðaraðili hvers skotvopns og að enginn geti haft yfir að ráða skotvopnum nema að hafa skotvopnaleyfi. Einnig er lagt til að öll skotvopn skuli geymd í sérútbúnum vopnaskáp og að allir sem eigi skotvopn skuli hafa yfir slíkum skáp að ráða. Skýrari ákvæði um skráningar, auk kröfu um að allir skuli hafa yfir vopnaskáp að ráða, gerir eftirlit með skotvopnum auðveldara og dregur úr líkum á því að skotvopn séu í geymslu hjá einstaklingi sem ekki hefur skotvopnaleyfi, t.d. vegna þess að leyfi hans hefur verið afturkallað.
Með frumvarpinu er einnig kveðið á um ýmis nýmæli, m.a. er lagt til að heimilt verði í ákveðnum tilvikum, svo sem vegna kvikmyndagerðar, að eiga eftirlíkingar skotvopna. Slíkt hefur hingað til verið bannað samkvæmt lögum.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að heimilt verði að setja í reglugerð ákvæði um notkun ungmenna og barna á ákveðnum tegundum skotvopna í þeim tilgangi að æfa og keppa. Með því er brugðist við ábendingum skotfélaga landsins. Með frumvarpinu er einnig lagt til að hægt verði að setja í reglugerð tímabundna heimild til að innkalla skotvopn eða fá óskráð vopn skráð, vörsluaðilum þeirra að refsilausu. Slík innköllun gæti haft áhrif til fækkunar skotvopna í landinu.
Frumvarp þetta var unnið í dómsmálaráðuneytinu í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra og embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Þá var frumvarpið jafnframt birt í samráðsgátt stjórnvalda 28. febrúar 2023 og almenningi gefinn kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar. Sérstakt samráð var haft við tiltekna hag, hafa einkum Skotíþróttasambandið og Skotveiðifélagið.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins. Ég legg því til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu.