154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitímabils.

49. mál
[15:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og fyrir að mæla hér fyrir þessari tillögu til þingsályktunar. Hún er tímabær og því miður margendurtekin. Ég tek undir, held ég að ég geti sagt, allt það sem kom fram í framsöguræðu hv. þingmanns. Nú er mælt fyrir þessu máli efnislega óbreyttu eða lítið breyttu alla vega í fimmta skipti. Telur hv. þingmaður að eitthvað auki líkurnar á því að þetta góða mál fái framgang á þessu þingi? Eru einhver samtöl sem hafa átt sér stað sem gera það að verkum að það sé líklegt að málið nái fram að ganga, líklegra en áður? Eða hefur hæstv. ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála látið frá sér fara eitthvað í þá veruna að taka upp þau sjónarmið sem hér eru sett fram í einhverjum af sínum málum? Það er eins og við þekkjum, þingmannamál eiga það til að daga uppi og það er ástæða þess að hér er oft býsna góð mál flutt margoft í þingsal án þess að þau komist til neinnar efnislegrar umræðu. Það hafa komið umsagnir um þetta mál á fyrri stigum sem eru auðvitað beggja blands, þar sem friðunarsjónarmið takast á við nýtingu og vernd verðmæta. En meginspurningin til hv. þingmanns er hvort það sé eitthvað sem er hægt að gera til að auka líkurnar á að þetta góða mál nái fram að ganga.