154. löggjafarþing — 24. fundur,  7. nóv. 2023.

leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitímabils.

49. mál
[15:51]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er ekkert einfalt svar við þessu, hvað viðkomandi þingmaður heldur og hvers hann væntir. Ég legg það nú yfirleitt að jöfnu, hvar svo sem menn standa í pólitík eða annað, í þeim verkefnum sem menn taka að sér, en ég ber væntingar til þess ráðherra sem er við stjórnvölinn núna í umhverfis-, loftslags- og orkumálum um að hann taki til óspilltra málanna. Það á náttúrlega að vera þannig, alveg sama í hvaða flokki menn eru, að menn eiga að láta verkin tala. Það er fyrst og fremst verkefnið. Það er ákveðinn sáttmáli í gangi innan ríkisstjórnarinnar og það sem verið er að hvetja til hins og þessa og hvetja menn til góðra verka og þá er það þannig, burt séð frá því í hvaða flokki menn standa, að menn eiga að láta allt fylgja með. Ef þeir leggja eitthvað til, þá verða þeir að styðja við það. Ég ber þær væntingar í brjósti að umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra fylgi þessu eftir og geri það sem verið er að hvetja til og beiti þeim verkfærum sem hann hefur í höndunum nú þegar.