154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

afturköllun dagskrártillögu.

[15:02]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Í gær var mánuður liðinn frá því að átök brutust út fyrir botni Miðjarðarhafs. Það leið mánuður án þess að utanríkisráðherra fordæmdi þá skelfilegu stríðsglæpi sem við höfum orðið vitni að af hálfu Ísraelshers og án þess að sami ráðherra gerði skýra kröfu um vopnahlé strax. Það var af þeim sökum sem ég lagði fram dagskrártillögu í gær til þess að þingið gæti rætt hver stefna Íslands er í þessum málum, komist að sameiginlegri niðurstöðu og sent skýr skilaboð. Frá því að ég sendi þessa dagskrártillögu hefur orðið sú þróun að fram er komin tillaga frá utanríkismálanefnd allri sem sameinar alla flokka í skýrri tillögu, sem er auðvitað ekki 100% eins og ég hefði orðað hana sjálf, en er mikilvæg málamiðlun og sendir mikilvæg og skýr skilaboð til bæði ráðherra og alþjóðasamfélagsins um stöðuna og okkar afstöðu, verði hún samþykkt.

Ég mun því draga dagskrártillöguna mína til baka og þingsályktunartillöguna sem ég og nokkrir aðrir flutningsmenn höfum lagt fram mun ég einnig draga til baka í nafni samstöðu. (Forseti hringir.) Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir frumkvæðið og ég hef vilyrði fyrir því að þetta mál verði sett á dagskrá á morgun. Þar af leiðandi fell ég frá þessari dagskrártillögu.