154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

afturköllun dagskrártillögu.

[15:03]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Það liggur þannig í málum að þingflokkur Viðreisnar lagði líka fram þingsályktunartillögu um þetta mál og ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Sú tillaga sem utanríkismálanefnd hefur sameinast um er efnislega samhljóða þeirri tillögu okkar og okkar tillaga var byggð á þeirri breytingartillögu sem Kanada lagði fyrir þing Sameinuðu þjóðanna og allir bandamenn okkar í Evrópu og víðar sættust á þá. Þróun mála hér í þinginu í dag hefur því verið mjög ánægjuleg. Þingflokkur Viðreisnar dregur því þingsályktunartillögu sína til baka og við styðjum heils hugar þá lendingu sem náðist á fundi utanríkismálanefndar í morgun. Ég vil nota tækifærið og þakka nefndarmönnum og öðrum sem að komu fyrir gott samstarf.