154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

afturköllun dagskrártillögu.

[15:04]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka nefndarmönnum hv. utanríkismálanefndar kærlega fyrir samstarfið. Ég tek undir með hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur varðandi það hversu mikilvægt það er að þessi málamiðlun hafi náðst um þessi mikilvægu skilaboð frá Alþingi Íslendinga. Tillagan, málamiðlunin, byggir efnislega á ályktun Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna með breytingartillögu Kanada. Það er mikilvægt að Alþingi geti náð saman þar um, allir flokkar, eins erfitt og viðkvæmt mál og um ræðir. Ég hef, samkvæmt samtali við hæstv. forseta, vilyrði fyrir því að málið komist á dagskrá á morgun ef Alþingi samþykkir.