154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Nýliðinn októbermánuður var sá hlýjasti frá upphafi mælinga. Árið í ár verður án nokkurs vafa það hlýjasta frá upphafi mælinga, er fullyrt í fréttum frá Loftslagsstofnun Evrópusambandsins í dag. Eins og staðan er núna hefur hlýnun jarðar numið tæplega 1,5°C en við vitum öll að í París árið 2015 komu ríki sér saman um að halda hlýnuninni sem næst 1,5°C eins og hægt væri og alltaf innan 2°C. Innan nokkurra vikna hefst 28. aðildarríkjaþing loftslagssamningsins og þar verða þessi brýnustu mál samtímans til umfjöllunar eina ferðina enn.

Mig langar af tilefni fréttaflutnings í dag í alþjóðapressunni að vekja athygli þingmanna á fréttum af hlýnuninni og áhrifum hennar á ofsaveður, öfgaþurrka og í rauninni hrikaleg lífsskilyrði fólks víða um heim. Þar segir að miklir þurrkar eins og þeir sem fólk átti að venjast t.d. bæði í Sýrlandi og Írak og komu á 250 ára fresti komi núna á tíu ára fresti. 250 ára þurrkatíð komi á tíu ára fresti. Í Íran er talað um að 80 ára þurrkarnir komi á fimm ára fresti. Það þarf enginn hér inni að velkjast í vafa um hvaða áhrif þetta hefur á matvælaframleiðslu, á lífsskilyrði fólks og í rauninni ýtir undir bæði ójöfnuð, fátækt og oftar en ekki átök á þessum sömu svæðum.