154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Björgvin Jóhannesson (S):

Virðulegur forseti. Öryggi vegfarenda og styttri ferðatími, öruggar og traustar samgöngur — um þetta snúast samgöngumál fyrir okkur sem búum á landsbyggðinni. Ég tel brýnt að skoða allar mögulegar leiðir til að bæta samgöngur á landsbyggðinni og flýta framkvæmdum sé þess kostur. Sameiginlegt markmið okkar hlýtur að vera að auka öryggi vegfarenda og tengja saman svæði og stytta leiðir. Þannig sköpum við fólki og fyrirtækjum aukin atvinnutækifæri og betri búsetuskilyrði.

Lög um samvinnuverkefni í vegaframkvæmdum, sem voru samþykkt á Alþingi árið 2020, heimila samstarf hins opinbera og einkaaðila um tilteknar framkvæmdir við samgöngumannvirki og gjaldtöku vegna þeirra. Markmið laganna er að flýta uppbyggingu mikilvægra samgönguinnviða enn frekar, stytta vegalengdir og auka umferðaröryggi. Í öllum framkvæmdunum munu vegfarendur hafa val um aðra leið og ekki greiða gjald fyrir á þeirri leið. Ein af þeim framkvæmdum sem áætlað er að unnin verði sem samvinnuverkefni og er einmitt tilvalin sem slíkt, er eitt brýnasta og arðsamasta jarðgangaverkefni sem er á samgönguáætlun. Hér erum við að tala um láglendisveg í Mýrdal og jarðgöng undir Reynisfjall. Þarna er um að ræða baráttumál til áratuga en það hefur nú verið fært aftar í röðina í samgönguáætlun og lýsi ég yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun. Það sem helst mælir með því að flýta þessari framkvæmd er að fækka slysum og umferðaróhöppum sem hafa verið mjög tíð á vegarkaflanum sem verður aflagður og tíðar vegarlokanir á veturna. Stytting ferðatíma verður gríðarleg en Vík í Mýrdal er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og getur umferð nú farið upp í um 5.000 bíla á dag. Þjóðvegurinn þverar nú þorpið en þar hefur nokkrum sinnum legið við alvarlegum slysum.

Ég skora á hæstv. innviðaráðherra (Forseti hringir.) að setja þessa framkvæmd framar í röðina þegar samgönguáætlun verður endurskoðuð því að ávinningurinn af henni er gríðarlegur, (Forseti hringir.) mikill samfélagslegur ábati og brýnt öryggismál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)