154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við Íslendingar höfum stært okkur í gegnum tíðina af leikskólastiginu, stóra jöfnunartækinu okkar, kerfinu sem hefur gert konum kleift að sinna sinni vinnu, stunda nám, brjótast úr fátækt eða samböndum, kerfinu sem á að sjá um að kenna börnum af erlendum uppruna íslensku og aðlagast samfélaginu okkar, kerfinu sem grípur börn sem búa við ofbeldi og vanrækslu, kerfinu sem hefur tryggt íslensku samfélagi fremstu stöðu meðal þjóða í jafnréttismálum og einhverja hæstu atvinnuþátttöku kvenna á heimsvísu. Það er nefnilega ástæða til að gjalda varhug við þeirri ákvörðun Garðabæjar að skera niður í leikskólaþjónustu í þá átt sem farin hefur verið í Kópavogi, líkt og heyrist nú af í fréttum. Þetta eru aðgerðir sem eiga að vera til þess fallnar að leysa mönnunarvanda, fækka á biðlistum og bæta starfsaðstæður, aðstæður sem leiða af áralöngu vanmati á kvennastéttum sem vinna störf sem voru unnin endurgjaldslaust áður fyrr.

Virðulegur forseti. Á meðan það er látið ógert þá gengur dæmið hreinlega ekki upp. Á meðan stærstur hluti vinnandi fólks vinnur í kringum átta tíma vinnudag, 40 stunda vinnuviku, getur ekki talist sjálfbært að stytta leikskóladaginn ef það kemur ekkert á móti frá sveitarfélögunum sem boða þennan niðurskurð. Það væri mögulega eitthvert mark takandi á þessum aðgerðum ef sveitarfélögin kærðu sig um að stytta vinnutíma foreldra og færu þar á undan með góðu fordæmi til hvatningar fyrir atvinnulífið, enda eru ekki nokkrar einustu líkur á því að atvinnulífið stígi fyrsta skrefið í átt að styttri vinnuviku í kjölfar þjónustuskerðingar sveitarfélaga. Þetta, herra forseti, mun fyrst og fremst bitna á konum og fækka börnum sem yfir höfuð skila sér inn á leikskólastigið sem hvað mest þurfa á því að halda. Ég neita að fylgjast þegjandi með stóra bakslaginu í íslenskum jafnréttismálum. Menntun kostar og börnum líður vel á leikskóla og ég kalla eftir þjóðarsátt um leikskólastigið.