154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Nú er kominn tími á einn af mínum reglulegu raforkupistlum. Í vikunni gekk ísingarveður yfir Austurland sem olli rafmagnstruflunum en mér sýnist að betur hafi farið en á horfðist. Hver atburður af þessu tagi minnir okkur samt á mikilvægi þess að koma öllu dreifikerfi Rariks í jörð og endurnýja byggðalínuna.

Þá að raforkukostnaði. Í landinu eru tvær gjaldskrár vegna dreifingar raforku; dreifbýlisverð og þéttbýlisverð. Íbúar og fyrirtæki í dreifbýli borga umtalsvert hærra verð. Ríkisstjórnin hefur sett fjármagn í að jafna dreifikostnaðinn en samt sem áður er innbyggð óvissa í fyrirkomulagið eins og það er. Almannajöfnunin og samningar við garðyrkjubændur byggjast á skiptingu á ákveðinni fjárveitingu milli þeirra sem njóta jöfnunar. Þannig er enginn hvati til að fjölga notendum í dreifbýli eða garðyrkju og má raunar segja að þvert á móti sé skammtímahvati til að fækka notendum. Ef aftur á móti væri litið á heildarmyndina og til langtímasjónarmiða væri það allra hagur að fjölga notendum raforku í dreifbýli því að þá skiptist dreifikostnaðurinn á fleiri. En af hverju jöfnum við ekki bara dreifikostnaðinn á alla landsmenn? Stjórnvöld verða a.m.k. að leita fyrirsjáanlegri lausna við jöfnun dreifikostnaðar, hvort sem er til almennra notenda eða í stuðningi við garðyrkju. Í því sambandi er rétt að rifja upp að samkvæmt stjórnarsáttmála er ætlunin að auka grænmetisframleiðslu með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar. Dreifikerfi í jörð, þrífösun rafmagns og fyrirsjáanleiki í dreifikostnaði raforku eru brýnustu hagsmunamálin fyrir fyrirtæki sem staðsett eru í dreifbýlinu, jafnt fyrirtæki í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu eins og landbúnaði og á ýmsum öðrum sviðum. Nýsköpun, orkuskipti, nýliðun og öll framtíð dreifðra byggða er háð því að orka fáist, hún sé afhent á öruggan hátt og á samkeppnishæfu verði.