Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Suðurnesin standa mér nærri. Þar hef ég búið nánast alla mína tíð, alið upp börnin mín, og þar vil ég vera áfram. Svæðið er gjöfult og mannlífið er gott. Suðurnesjafólki hefur fjölgað mikið hin síðari ár og í mínum huga er það engin tilviljun. Við erum svo heppin á fyrri tíð að eiga frumkvöðla sem allt frá miðri síðustu öld fóru að leita leiða til að nýta þá miklu krafta sem búa í jarðhitanum á Reykjanesskaga. Það skilaði sér síðan í því að Hitaveita Suðurnesja var stofnuð árið 1974 og var fyrstu varmaskiptastöðinni komið fyrir árið 1976 í Svartsengi og var heitu vatni hleypt á hús í Grindavík það sama ár. Þessar gjöfulu náttúruauðlindir sem þjónað hafa Suðurnesjum og reyndar landinu öllu í hálfa öld sýna nú á sér aðra hlið. Reykjanesskaginn hefur rumskað allhressilega eftir að hafa lúrað í u.þ.b. 700 ár. Það minnir okkur Íslendinga á hvað við erum smá við hlið náttúruaflanna. Ef illa fer gæti þetta raskað búsetuskilyrðum á svæðinu öllu en ég vona að slík sviðsmynd verði ekki að veruleika.
Það sem er mér hins vegar efst í huga á þessu stigi er þakklæti til þeirra sem standa í eldlínunni þessa dagana við að tryggja öryggi okkar hinna. Grindvíkingar hafa nú þegar haldið upplýsingafund og er slíkur fundur fyrirhugaður í Reykjanesbæ í kvöld. Það er ekki annað hægt en að dást að Grindvíkingum og allri þeirri framvarðasveit sem þar starfar af mikilli eljusemi og yfirvegun við erfiðar aðstæður.
Virðulegi forseti. Það veitir okkur hinum öryggi að hafa í stafni einstaklinga sem taka á óvissunni og hættunni af miklu æðruleysi. Við erum lánsöm að hafa aðila sem fylgjast með hverri hreyfingu og miðla upplýsingum nánast í rauntíma. Fyrir það ber að þakka. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)