154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sem samþykkt var í febrúar á þessu ári, er lögð áhersla á víðtæka öryggishagsmuni Íslands með virku alþjóðasamstarfi á grundvelli alþjóðalaga og með friðsamlega lausn deilumála, afvopnun, virðingu fyrir lýðræðislegum gildum, mannréttindum og réttarríkinu, jafnrétti kynjanna og baráttu gegn ójöfnuði, hungri og fátækt að leiðarljósi. Einnig er áhersla á að efla enn frekar norræna samvinnu um öryggis- og varnarmál. Norrænu ríkin hafa staðið þétt saman um stuðning við Úkraínu eftir innrás Rússa líkt og öll Vesturlönd hafa gert.

Nú geisar einnig stríð við botn Miðjarðarhafs. Ísrael og Gaza hafa verið í klóm pólitískra öfgaafla um langt skeið. Börn og óbreyttir borgarar líða fyrir ástandið sem er hræðilegt og fer versnandi. Sagt er að barn látist í árásum Ísraelsmanna á tíu mínútna fresti. Norrænu ríkin hafa komið fram á alþjóðavettvangi sem boðberar friðar og hvatt til alþjóðlegra samninga um frið og afvopnun. Því voru það tíðindi og vonbrigði að þau hafi klofnað í afstöðu sinni til ályktunar á þingi Sameinuðu þjóðanna um hlé á árásum af mannúðarástæðum til að koma særðu, sjúku og svöngu fólki til hjálpar.

Ríkisstjórn Íslands hefur ekki enn fordæmt árásir á Gaza. Ísland samþykkti ekki tillöguna um vopnahlé. Ég tel að það hafi gengið gegn áherslum á friðsamlegar lausnir og afvopnun í gildandi þjóðaröryggisstefnu. Þrátt fyrir eftiráskýringar hæstv. ráðherra hefur hjáseta Íslands (Forseti hringir.) orðið til þess að Ísland hefur orðið fyrir álitshnekki á alþjóðavettvangi sem boðberi friðar og afvopnunar.