154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil nota tækifærið hér í störfum þingsins og ræða aðeins um vinnubrögð okkar hér á Alþingi og í stjórnmálunum almennt. Við höfum orðið vitni að því hér í dag að það getur vel verið hægt að ná lendingu í erfiðum, viðkvæmum og flóknum deilumálum hér innan húss ef allir leggjast á eitt og eru sammála um að það sé eitt allsherjarmarkmið sem stefna skuli að og allir þurfi mögulega þá að slá eitthvað af sínum ýtrustu kröfum. Það gerðist núna í dag á fundi utanríkismálanefndar þar sem nefndin sættist á að leggja fram þingsályktunartillögu sem er efnislega samhljóða þeirri breytingartillögu sem Kanada lagði fram á þingi Sameinuðu þjóðanna en var felld. Eftirmálana þekkjum við, það var ekki samstaða í ríkisstjórn Íslands, hjá utanríkisráðherra og forsætisráðherra m.a., um það hvernig atkvæði Íslands á þeim vettvangi ætti að falla. Þingið reyndist hins vegar í dag stærra heldur en ríkisstjórnin, vil ég meina, með því að ná sameiginlegri lausn fram hér á vettvangi þingsins sem allir geta sameinast um. Þar er verið að fordæma öll óhæfuverk og grimmdarverk beggja aðila. Þar er verið að kalla eftir mannúðarhléi, verið að kalla eftir því að fólk sem þjáist á Gaza-ströndinni og víðar fái aðstoð, kalla eftir því að lausn gísla verði höfð í fyrirrúmi, að þeim verði sleppt sem fyrst. Þetta er eitthvað sem þingið mætti gera oftar, að reyna koma sér saman um erfið, viðkvæm og flókin deilumál, því að ég held að það sé algerlega ljóst að það sameinar okkur Íslendinga alla og alla flokka að við erum á móti ofbeldi, við viljum fordæma það á alþjóðavettvangi. Ef það er leiðarljósið frekar en það að festast í einhverjum undirliggjandi deiluefnum getur röddin verið skýr og að mínu mati verður hún það með þessari tillögu sem Alþingi samþykkir vonandi.