Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag fylla okkur viðbjóði og vanmætti. Saklausu blóði er úthellt í sjálfhverfum byssuleik valdamikilla karla sem enga ábyrgð taka á gjörðum sínum og skella skollaeyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins um vopnahlé. Einn af hörmulegum fylgifiskum stríðsátaka er bakslag í stöðu kvenna. Stríðsátök hafa tilhneigingu til að auka tíðni kynferðisofbeldis og konur og stúlkur eru þar fyrst og fremst fórnarlömb. Nauðganir, kynsjúkdómar, þar með talið alnæmi, og óæskilegar þunganir eru hluti þeirra afleiðinga sem konur líða á stríðshrjáðum svæðum. Ofan á þetta hryllilega ástand bætist svo að nauðsynleg þjónusta, svo sem heilbrigðis- og félagsþjónusta sem ekki síst konur þurfa á að halda, raskast mjög og liggur þjónustan jafnvel alveg niðri vegna átakanna.
Virðulegi forseti. Við megum hvergi hvika frá baráttunni fyrir kvenfrelsi. Við Íslendingar eigum sterkasta kvenleiðtoga heims, Katrínu Jakobsdóttur, hæstv. forsætisráðherra, sem með orðum sínum og gjörðum hefur talað fyrir kvenfrelsi og friði á heimsvísu um árabil. Í næstu viku mun fara fram ráðstefna kvenleiðtoga í Reykjavík og treysti ég því að staða kvenna á stríðshrjáðum svæðum verði tekin á dagskrá því að samstaða kvenna um allan heim skiptir máli. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)