Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Tæplega 40% svarenda hjá Reykjavík síðdegis, um stöðu heimilanna í landinu og stöðu einstaklinganna í landinu, um það hvort þeir næðu endum saman, sögðu nákvæmlega: Nei. Tæplega 40% ná ekki endum saman. Það er ekki hægt að ætla að loka augunum fyrir því hversu gríðarlega mikill vöxtur er í fátækt í landinu í dag. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, hvort sem þessi ríkisstjórn viðurkennir það eða ekki. Því til rökstuðnings má nefna að talsmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar, framkvæmdastjórinn þar, segist aldrei hafa séð annan eins vöxt í beiðnum um hjálp og aðstoð eins og nú. Hún segir: Það sorglega er að þeir eru að koma núna og biðja um hjálp sem ekki hafa þurft að leita til Hjálparstofnunar kirkjunnar í mörg ár. Þeir gerðu það fyrir mörgum árum síðan en hafa á þessu tímabili, í einhver ár, getað komið sér þokkalega fyrir. En núna er öldin önnur. Þetta á við um okkar minnstu bræður og systur, þetta á við um fjölskyldurnar, heimilin, millistór, meðalstór fyrirtæki og jafnvel þá sem eru millitekjufólk. Það þarf ekki endilega að vera á almannatryggingagreiðslum til að geta flokkast undir það að ná ekki endum saman og virkilega hafa það erfitt í samfélaginu. Ég vil nefna það að í næsta mánuði er jólamánuðinn að renna upp. Ætlar þessi ríkisstjórn að sýna þá mannúð að koma til móts við fólkið okkar sem í þúsundatali mun ekki getað haldið gleðileg jól? Ætlar þessi ríkisstjórn að koma með jólabónus fyrir þetta fólk, eins og við höfum gert tvenn síðastliðinn jól, eða ætlar hún ekki að gera það? Ég skora hins vegar á þau að gera það. Ég er búin að fá mýmarga pósta frá fólki sem spyr: Ætlið þið, ágætu þingmenn, að hjálpa okkur nú sem aldrei fyrr svo að við getum fengið að halda gleðileg jól?