fasteignalán til neytenda og nauðungarsala.
Virðulegi forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda og lögum um nauðungarsölu, nauðungarsala og eftirstöðvar. Hér er um mjög mikilvægt frumvarp að ræða og ekki síst nú á tímum þar sem fyrirsjáanlegt er jafnvel að húsnæðiseigendur og lántakendur munu lenda í gríðarlegum greiðsluerfiðleikum. Fasteignamarkaðurinn er nú þegar frosinn og ekki ólíklegt að eign húsnæðiseigenda og lántakenda í húsnæði sínu verði neikvæð þar sem lánin hafa vaxið gríðarlega mikið. Við erum núna með stýrivexti sem eru 9,25% og verðbólgu sem er sennilega eitthvað í kringum 8–9%. Það er ekkert ólíklegt að núna, verði frumvarpið að lögum, muni reyna á þetta, reyna á það einfaldlega að húsnæðiseigendur og lántakendur geti skilað fasteign sinni til bankanna aftur án þess að sitja eftir með skuldahala næstu ár og áratugi vegna hárra húsnæðislána.
Þegar kemur að uppboði, nauðungarsölu, eru fasteignir oft seldar á hrakvirði, á lágu verði þar sem bankinn leysir til sín eign á mjög lágu verði sem er langt undir markaðsvirði. Þetta sýnir hversu mikið það myndi bæta réttarstöðuna ef lántakendur, neytendur fasteignalána, gætu einfaldlega skilað húsnæðinu og gengið skuldlausir frá borði þegar í harðbakkann slær, eins og kemur fram í frumvarpinu.
Markmið þessa frumvarps er mjög skýrt, að stuðla að vandaðri lánastarfsemi með því að færa skuldurum að fasteignalánum í hendur þann möguleika að láta af hendi veðandlag lána sinna, þ.e. viðkomandi fasteign sem þeir hafa fengið lán fyrir til íbúðarkaupa, á þeirri íbúð. Hérna er verið að dreifa áhættunni af fasteignalánum til bankans líka. Það er ekki hægt eins og er í dag að fasteignaeigendur og lántakendur húsnæðislána beri bæði verðbólguáhættuna og áhættuna af því að markaðsvirði fasteignar sem þeir hafa keypt muni hrynja og þeir sitji bara eftir með skuldina af húsnæðiskaupum eftir uppgjörið, eftir að búið er að selja fasteignina á uppboði sýslumanns, á nauðungarsölu.
Markmiðið, eins og kemur fram í frumvarpinu er að stuðla að skilvirkri innleiðingu og framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins frá 2014 um lánasamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði og fleira. Þá vil ég benda á að með þingsályktun frá 2019 samþykkti Alþingi að stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku gerðarinnar í EES-samninginn yrði aflétt. Efnisákvæði tilskipunarinnar hafa að miklu leyti verið lögfest hér á landi með lögum um fasteignalán til neytenda.
Hér er verið að tala um ákveðið úrræði sem er kallað efndaígildi, á latínu datio in solutum, í fasteignalánum, þ.e. að kröfuhafinn viðurkenni aðra greiðslu en peningagreiðslu fyrir húsnæðislánið. Hann viðurkennir að hann taki við eigninni sem lánað var fyrir. Þetta er gert í mörgum Evrópuríkjum, eins og kemur fram í greinargerðinni, einkum á Spáni og í mörgum ríkjum Bandaríkjanna. Þetta er eins konar lyklafrumvarp, eins og það er kallað. Þetta úrræði er mjög algengt í Bandaríkjunum enda er fjármálastofnun að lána í ákveðnum tilgangi, það er verið að lána fyrir húsnæðiskaupum, íbúðakaupum, og það er áhættan sem bankinn ber. Það er ekki hægt að segja að þegar íbúðaverð lækkar síðan eigi íbúðarkaupandinn og skuldari húsnæðislánsins að standa uppi með skuldirnar einn og sér til margra áratuga. Það er gríðarlegt óréttlæti í því og ósanngirni. Þetta myndi, eins og kemur fram í frumvarpinu og er augljóst mál, minnka áhættu lántakenda af húsnæðiskaupum. Þetta myndi líka færa meiri aga til bankastofnana og fjármálastofnana við lánveitingar, sem er gríðarlega mikilvægt.
Það er ekki verið að fara fram á það að fjármálastofnanir, bankar og lífeyrissjóðir, muni bera einhverja gríðarlega áhættu þar sem fasteignir eru sennilega ein tryggasta fjárfesting sem til er á Íslandi, bæði sýnir sagan það og það á líka við um ókomna framtíð. Það er ekkert sem bendir til þess að fasteignaverð á Íslandi muni fara að hrynja í verði eða lækka í verði eða neitt slíkt til lengri tíma litið.
Það er mjög nauðsynlegt að læra af reynslunni, að við innleiðum þetta úrræði til að fyrirbyggja að sagan endurtaki sig. Og hvaða saga er það? Jú, það er sagan frá hruninu, saga fjármálahrunsins og það sem gerðist í kjölfar fjármálahrunsins í október 2008. Að fenginni þeirri reynslu yrði til mikilla bóta að styrkja stöðu skuldara fasteignaveðlána með þeim hætti sem frumvarpið kveður á um og auk þess myndi það færa skuldurum í hendur nauðsynlegt úrræði til að mæta ófyrirséðum fjárhagserfiðleikum sem sú áhættudreifing felur í sér og hvetja lánastofnanir til að stunda vandaðri lánastarfsemi til húsnæðiskaupenda. Þetta er ákveðin frelsun fyrir íbúðakaupendur og lántakendur húsnæðislána ef í harðbakkann slær og ef fasteignir verða með neikvætt eigið fé, ef þeir enda með neikvætt eigið fé., þ.e. ef skuldin verður mun hærri en eignin sem þeir fengu lánað fyrir.
Við getum tekið dæmi. Segjum að það sé lánað fyrir 50 millj. kr. íbúð og skuldin sé allt í einu komin upp í 60–70 millj. kr. Þótt markaðsvirðið sé 50 milljónir getur íbúðin verið seld á miklu lægra verði í nauðungarsölu, kannski á 40 milljónir. Þá erum við að tala um að skuldin sé komin upp í 60 milljónir og að það sé 20–30 milljóna skuld að baki sem hvílir á lántakandanum og fyrrum húsnæðiseiganda eftir nauðungarsölu. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig lífshlaup þess einstaklings verður næstu árin við að greiða þann stabba niður.
Ég tel að þetta sé mikilvægt frumvarp og ekki síst nú á tímum miðað við það hvernig verðbólgan er og miðað við gríðarlega háa stýrivexti. Við bíðum nú öll eftir snjóhengjunni, þegar lánaskilmálar fastvaxtalánanna fara að breytast nú á næstu mánuðum. Þetta er bara gríðarlegt réttaröryggi. Ég vonast til að málið fái góða meðferð í nefnd og verði vonandi að lögum fyrr en síðar.