154. löggjafarþing — 25. fundur,  8. nóv. 2023.

þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

76. mál
[17:58]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008. Hér er um mjög einfalt mál að ræða, að við breytum nafninu úr því sem ég las upp hér áðan í einfalt og laggott nafn sem er Sjónstöðin, að þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu fái einfaldlega nafnið Sjónstöðin.

Bara í nafni gagnsæis og einföldunar í stjórnsýslu þá ætti þetta að vera — ég veit að ég má ekki sletta, frú forseti, en mig langar að segja ákveðin ensk orð, að þetta væri, ég segi ekki „no-brainer“ [Hlátur í þingsal.] en það er algerlega hægt að gera þetta umhugsunarlaust, bæði í nafni gagnsæis og einföldunar. Hver er einföldunin? Jú, við erum að breyta heiti stofnunar sem er í dag 13 orð, það þarf 13 orð í eitt heiti stofnunar. Það er rúmlega 90 bókstafir. (Gripið fram í.) Einföldunin er sú að í stað 13 orða og rúmlega 90 bókstafa tækjum við upp eitt orð með tíu bókstöfum. Þetta er einföldunin, færum 13 orð í eitt og förum úr 90 bókstöfum í tíu. Ég ætla að reyna að segja þetta núna án þess að lesa af blaði: Það er þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjónskerðingu, (Gripið fram í: Sjón- og heyrnarskerðingu.) sjón- og heyrnarskerðingu. Ég féll víst á prófinu.

Mér finnst þetta vera mikilvægt mál og ekki síst að formaður flokks míns, flokks okkar, sem er að flytja þetta mál, er lögblind og hún hefur fengið frábæra þjónustu hjá þessari merku stofnun. Mér finnst að þingheimur eigi bara að sýna formanni Flokks fólksins þá virðingu að samþykkja þetta frumvarp, samþykkja þetta einróma. Það er enginn kostnaður við þetta og stjórnin myndi því miður ekki falla við að samþykkja þetta frumvarp. Það myndi ekkert gerast, pólitísk áhætta hjá ríkisstjórnarflokkunum og stjórnarmeirihlutanum við að samþykkja þetta frumvarp er engin, sama og engin.

Nú er kominn tími til að gefa stofnuninni venjulegt heiti. Það er ekki verið að fara fram á mikið heldur að gefa stofnuninni venjulegt heiti og nafnið Sjónstöðin lýsir hlutverki stofnunarinnar, þ.e. að aðstoða þá sem eru blindir, sjónskertir og/eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu eins og segir í frumvarpinu. Það kannast margir þetta heiti enda var starfrækt Sjónstöð á árunum 1987–2008 þannig að það þekkja allir heitið Sjónstöðina, a.m.k. þeir sem voru virkir þátttakendur í samfélaginu á þessum tíma, á þessu 21 árs tímabili.

Þetta er ekki stórmál en ég skora á þingheim og stjórnarmeirihlutann að taka undir þetta mál og samþykkja það þannig að við þurfum ekki að fara að flytja það eina ferðina enn. Allir starfsmenn og stjórnendur eru sammála þessu, það eru allir sammála nema stjórnarmeirihlutinn sem hefur dagskrárvald í þessu húsi.