ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér með þingsályktunartillögu minni um ókeypis getnaðarvarnir fyrir einstaklinga yngri en 25 ára. Flutningsmenn tillögunnar eru, ásamt þeirri sem hér stendur, hv. þingmenn Halla Signý Kristjánsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Gísli Rafn Ólafsson, Oddný G. Harðardóttir og Inga Sæland.
Tillagan var áður lögð fram á 152. og 153. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.
Hæstv. forseti. Forvarnir og kynfræðsla fyrir ungt fólk hefur batnað mjög síðastliðin ár en við höfum séð á öllum tölum að ungmenni eru að stunda óöruggt kynlíf í meira mæli. Þetta kemur m.a. fram í alþjóðlegu rannsókninni Heilsa og líðan skólabarna, sem lögð hefur verið fyrir hér á landi frá árinu 2006, og einnig í tölfræði klamydíusmita sem má finna á heimasíðu sóttvarnalæknis. Á heimasíðu sóttvarnalæknis kemur fram að það er mjög mikill munur á fjölda smita meðal einstaklinga fyrir og eftir 25 ára aldur.
Kynheilbrigði er lýðheilsumál og öruggt kynlíf skiptir þar öllu máli. Notkun getnaðarvarna er meginþáttur þess. Við eigum að stuðla að því að ungmenni geti ávallt stundað öruggt kynlíf og gefa þeim tækifæri á að hafa meiri stjórn á sínu lífi. Fjárhagslegar ástæður eiga ekki að hafa úrslitavald um það hvort ungmenni noti getnaðarvarnir eða ekki, en fram hefur komið að fjárhagur geti komið í veg fyrir að ungt fólk noti getnaðarvarnir, sérstaklega dýrari gerðir þeirra sem teljast sýna meiri árangur til lengri tíma. Það eru til sögur af einstaklingum sem sleppa því að nota getnaðarvarnir til að spara pening.
Eitt af því sem getur fylgt kynlífi eru kynsjúkdómar og þá fylgja einnig ávallt líkur á barneignum. Til að koma í veg fyrir þungun eru til ýmsar gerðir getnaðarvarna; smokkurinn, pillan, lykkjan, stafurinn, sprautan og hringurinn eru dæmi um getnaðarvarnir. Það er komin mikil fjölbreytni í þennan flokk en þetta eru getnaðarvarnir sem eru hannaðar til að koma í veg fyrir þungun en smokkurinn er það eina sem við höfum í dag sem getur komið í veg fyrir kynsjúkdóma.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að einstaklingar nota getnaðarvarnir en þær varða almennt barneignir. Einstaklingur hefur ekki áhuga á barneignum, t.d. á ákveðnu tímabili, eða telur sig ekki vera tilbúinn til barneigna eða telur sig ekki hafa burði til þess að eignast börn. Þetta getur almennt tengst ungum aldri og notkun getnaðarvarna er algengust meðal ungs fólks, þó ekki nægilega mikil. Fjárhagur ungs fólks er breytilegur enda er fjöldi þess bara í hlutastarfi eða vaktavinnu með námi og það kemur fyrir í sumum mánuðum að peningaskortur neyði ungt fólk til að hagræða og það eru líkur á því að það hætti að kaupa getnaðarvarnir sem bitnar þá á kynheilbrigði þeirra.
Tillaga þessi er um að gera getnaðarvarnir ókeypis fyrir 25 ára og yngri. Hún er til þess fallin til að grípa ungt fólk sem neyðist til að taka slíkar ákvarðanir og veita þeim greitt aðgengi að getnaðarvörnum með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á almennt kynheilbrigði og lýðheilsu þjóðarinnar. Slík aðgerð er ekki nýnæmi á alþjóðagrundu og getnaðarvarnir eru ókeypis í fjölda ríkja. Það er mismunandi hvaða verjur eru aðgengilegar að kostnaðarlausu og hverjum þær eru aðgengilegar. Innan Evrópu eru getnaðarvarnir aðgengilegar ungmennum þeim að kostnaðarlausu, þar á meðal í Þýskalandi, Belgíu, Hollandi, Noregi, Bretlandi og Frakklandi. Í þessu samhengi ætla ég að líta til Frakklands. Frakkland hefur nýlega gert getnaðarvarnir ókeypis fyrir konur sem eru yngri en 25 ára og meðal röksemda ríkisstjórnar Frakklands fyrir þeirri aðgerð eru áhyggjur um að konur hætti nota getnaðarvarnir af fjárhagslegum ástæðum. Leiðarljósið er almennt það sama meðal annarra ríkja og í þessari þingsályktunartillögu, þ.e. að fjárhagslegar aðstæður eigi aldrei að liggja til grundvallar á vali milli öruggs og óöruggs kynlífs. Ungt fólk mun stunda kynlíf og það er staðreynd. Okkar hlutverk er að styðja það við að taka réttar ákvarðanir um notkun getnaðarvarna eftir þörf.
Kynsjúkdómar er eins mismunandi og þeir eru margir en þeir eiga þó eitt sameiginlegt, þeir hafa allir neikvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga, jafnvel geta þeir verið hættulegir í langan tíma eða jafnvel ævilangt. Þeir geta leitt til ófrjósemi og ýmissa veikinda. Sem dæmi er talið að klamydía sé algengasta ástæða ófrjósemi meðal ungs fólks. Það er mikilvægt lýðheilsumál að spornað sé við útbreiðslu kynsjúkdóma eftir fremsta megni. Þeir geta reynst hættulegir ef þeir eru ekki meðhöndlaðir tímanlega og á réttan hátt. Þeir geta í sumum tilvikum reynst ólæknandi og þá kemur einungis til greina að draga úr einkennum og hindra framgang þeirra tímabundið. Þeir koma stundum aldrei í ljós á áberandi hátt og því þurfa einstaklingar að huga að kynheilbrigði í hvívetna, nota verjur og fara reglulega í skoðun ef tilefni er til þess.
Ég ætla að nefna eitt dæmi sem er sérstakt vandamál í dag. Það er nefnilega lekandafaraldur. Það hefur verið mikil aukning í tilfellum lekanda á þessu ári og síðasta ári. Það er ekki búið að finna ákveðna skýringu á því hvað veldur þessari aukningu en það er ljóst að ef fólk myndi nota smokkinn myndi það minnka líkurnar á smiti allverulega. Það má því velta því fyrir sér: Er notkun á smokknum að minnka? Við höfum ekki gert sérstakar rannsóknar á þessu hér á landi en það er verið að rannsaka þetta í öðrum löndum. Þetta er nefnilega oft einkennalaus sjúkdómur sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar og í sumum löndum hefur aukningin verið mest í yngri aldurshópum. Það hafa líka komið fram sýklalyfjaónæmar lekandabakteríur sem þýðir að þær eru síðan ónæmar fyrir þeim lyfjum sem eru notuð gegn sjúkdómnum.
Það er mat flutningsmanna tillögu þessarar að stjórnvöld hér á landi eigi að fylgja fordæmi annarra landa og gera getnaðarvarnir aðgengilegar einstaklingum undir 25 ára þeim að kostnaðarlausu. Ungt fólk á að geta stuðlað að kynheilbrigði og sporna við óskipulegum barneignum án áhyggja um hvaða áhrif það hefur á veskið hverju sinni.
Með samþykkt tillögunnar myndi Alþingi fela heilbrigðisráðherra að útfæra þessi áform, m.a. með tilliti til takmarkana og þeirra staða þar sem getnaðarvarnirnar yrðu aðgengilegar einstaklingum yngri en 25 ára þeim að kostnaðarlausu. Með takmörkunum er aðallega átt við afhendingu smokka, þ.e. að einstaklingur geti ekki komið og óskað eftir þúsundum smokka á einu bretti.
Hæstv. forseti. Ég bind miklar vonir við að þingheimur standi saman með ungu fólki og kynheilbrigði þjóðarinnar með samþykkt tillögunnar og ég þakka öllum þeim sem standa að tillögunni með mér. Að lokum óska ég eftir því að hún gangi til hæstv. velferðarnefndar.