desemberuppbót til lífeyrisþega.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir fyrirspurnina. Þetta er vissulega mál sem við höfum rætt og afgreitt tvenn síðustu jól. Nú er það svo að við erum enn með óbreytt kerfi almannatrygginga. Frumvarp um kerfisbreytingar á því kerfi er væntanlegt í vetur og ég vonast til að þar verði gengið frá þessum málum þannig að ekki þurfi að taka afstöðu til þess á hverju ári með tilheyrandi ófyrirsjáanleika fyrir þá hópa sem um ræðir.
Ég vil segja það að venjan hefur verið sú að um þetta hefur verið fjallað í fjáraukalagafrumvarpi fyrir ár hvert. Það er von á því á næstu tveimur vikum, ég þori ekki að nefna nákvæmlega dagsetningu. Það er stefnt að því að þar verði tekið á þessum málum þannig að það sé gert ráð fyrir desemberuppbót fyrir þennan hóp.