afstaða Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.
Virðulegur forseti. Það er þrýstingi almennings að þakka að við stöndum hér í dag sameinuð um tillögu sem kallar eftir vopnahléi strax. Þau hafa sent okkur skýr skilaboð um að hjáseta sé ekki í okkar nafni og þess vegna stöndum við hér. Ég er sammála því að það beri að hrósa hv. utanríkismálanefnd fyrir að hafa komið þessari tillögu til þingsins. Eins og vitað er var sú sem hér stendur ásamt flutningsmönnum úr öðrum flokkum með tillögu svipaðs efnis sem við höfum dregið til baka vegna þess að okkur fannst mikilvægt að þingið allt myndi sameinast um skýr skilaboð. Það ber að þakka þeim sem unnu að því að ná þessari samstöðu í gegn. Sér í lagi vil ég þakka almenningi fyrir sinn þátt í þessu máli og að lokum vil ég segja að þingflokkur Pírata mun halda ríkisstjórninni þétt við efnið og tryggja það að þessi skýra stefna Íslands finni sér einnig leið inn í alþjóðapólitík Íslands.