154. löggjafarþing — 27. fundur,  9. nóv. 2023.

almennar sanngirnisbætur.

449. mál
[13:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Já, það er akkúrat það sem ég óska eftir, að allsherjar- og menntamálanefnd taki málið til skoðunar þó að þetta sé þingmannamál.

Mig langaði hins vegar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í niðurlag 2. gr. þar sem talað er um að aðstandendur og eftirlifandi ættingjar einstaklinga sem hafa orðið fyrir illri meðferð eigi, með leyfi forseta, „ekki rétt til sanngirnisbóta nema þeir hafi sjálfir orðið fyrir varanlegum skaða sem ekki fæst bættur á annan hátt“.

Mín spurning er: Hvernig ætlum við að meta það hvort afkomandi eða eftirlifandi ættingi hafi orðið fyrir varanlegum skaða? Þetta er svolítið teygjanlegt orðtak. Hvernig ætlum við að meta það þar sem við erum algjörlega að loka þar á bætur?