154. löggjafarþing — 27. fundur,  9. nóv. 2023.

almennar sanngirnisbætur.

449. mál
[13:33]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Mig langaði til þess að spyrja hæstv. forsætisráðherra aðeins út í jafnræði þessa mismunandi hópa sem hafa orðið fyrir ofbeldi á heimilum. Suma er búið að afgreiða eins og í Hjalteyrarmálinu, sem var afgreitt þannig, að mér skilst, að í fjárlagafrumvarpinu sé um 410 milljónum ráðstafað í sanngirnisbætur fyrir þann hóp. Núna, ef þetta mál verður samþykkt, þá eru aðrir hópar, eins og t.d. konurnar sem voru í Varpholti og á Laugalandi sem börn, sem sækja væntanlega um bætur út frá forsendum þessa nýja frumvarps. Spurning mín snýst um tvennt. Í fyrsta lagi af hverju þetta var gert þannig og í öðru lagi: Af hverju hafa þessar konur frá Varpholti og Laugalandi setið eftir í svona gríðarlega langan tíma og beðið eftir því að fá einhvers konar aðstoð á meðan aðrir hópar hafa verið afgreiddir? Þeim var sagt að bíða eftir þessu frumvarpi. Mig langar til að spyrja: Hverjar eru forsendur upphæðanna sem eru ákvarðaðar? Er verið að minnka þær? Hvernig er þetta, er dómafordæmi og annað þegar það hafa verið greiddar út upphæðir í bætur til fólks? Hvernig kemur þetta út svona upp á að gæta jafnræðis og sanngirni meðal þessara hópa? Einn hópur fær þarna einhverjar 410 milljónir. Hvernig kemur þetta út fyrir þá sem eru að sækja um aðstoð í kjölfar þess að þetta frumvarp verði samþykkt?