almennar sanngirnisbætur.
Ég þakka aftur hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni andsvarið. Ef við byrjum aðeins á heimildunum eru þetta sambærilegar heimildir sem matsnefnd sanngirnisbóta og sanngirnisbótanefnd hafa eins og í sambærilegum lögum, ég get nefnt nú síðast lögin um vöggustofurannsóknina, þannig að þessar nefndir hafa töluverðar heimildir til að kafa ofan í mál. Hafi dómur fallið í máli einstaklings þar sem komist er að því að einhver vanlíðan eða skaði eða hvað það er sé ekki af völdum opinberrar stofnunar, þá er væntanlega sá dómur gagn í málinu og viðkomandi nefndir rýna þann dóm, því að það er auðvitað ekki þannig að þetta eigi að vera einhver sjálfsafgreiðsla. Það er ekki svoleiðis. Mér finnst það liggja fyrir að þessar nefndir hafa töluvert ríkar heimildir.
Það er líka verið að setja ríkar hæfiskröfur þannig að einn nefndarmaður í matsnefnd sanngirnisbóta, sem á að vera formaður nefndarinnar, skal fullnægja skilyrðum til að vera hæstaréttardómari. Hér eiga að koma að fagaðilar og síðan fulltrúar sem eru tilnefndir af þeim ráðherrum sem fara með félagsmál og dómsmál. Þegar kemur síðan að sanngirnisbótanefndinni skal einn nefndarmaður skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar, annar er tilnefndur af ráðherra sem fer með opinber fjármál og annar af Hæstarétti. Og um sérstök hæfisskilyrði gilda reglur stjórnsýslulaga. Við erum að reyna að taka vel utan um það að málin séu skoðuð til hlítar. Að sjálfsögðu, eins og ég nefndi hér áðan, er ekki gerð krafa um að fólk hafi farið með málið fyrir dóm því að langalgengast er að þessir aðilar hafi ekki leitað ásjár dómstóla og málin séu fyrnd. En ef málin eru opin þá er ekki óeðlilegt að gera þá kröfu að viðkomandi láti á rétt sinn reyna fyrir dómstólum. Því miður er það afar sjaldgæft, a.m.k. hjá þeim hópum þolenda sem ég hef haft kynni af, það er yfirleitt svo að þessi mál eru löngu fyrnd. Ég held að þetta svari þessu.