almennar sanngirnisbætur.
Frú forseti. Ég hyggst nú ekki lengja þessa umræðu en vil bara þakka þeim hv. þingmönnum sem hér hafa tekið þátt í umræðunni. Ég ítreka það sem ég sagði hér í minni fyrri ræðu að það er mikilvægt að hv. allsherjar- og menntamálanefnd skoði þau sjónarmið sem hér hafa komið fram og gefi sér tíma til að fara vel yfir þetta mál. Þetta er veruleg breyting. Ef þetta frumvarp verður að lögum felur það í sér mikla breytingu á umgjörð sanngirnisbóta. En þetta er líka viðkvæmt mál og kannski það síðasta sem mig langar að segja er að þetta er auðvitað mál sem er með mjög skýra samfélagslega vídd að því leytinu til að samfélög takast með mjög ólíkum hætti á við fortíðina. Og um leið og ég get tekið undir með þeim hv. þingmönnum sem nefna að það sé mikilvægast að huga að framtíðinni þá er það líka til marks um, að ég tel, þroskað samfélag að geta tekist á við fortíðina og gert hana upp með skynsamlegum hætti. Hvort þetta er besta leiðin til þess, ég ætla ekki að vera eini dómarinn um það. Það var mín niðurstaða eftir að hafa legið yfir þessu máli að þetta væri skynsamleg leið til þess. En ég vænti þess að þingið gefi sér góðan tíma um málið og ég hlakka til að eiga samstarf við allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við munum að sjálfsögðu vera reiðubúin til að eiga samtal við nefndina þegar það verður tekið til meðferðar.