vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Sem aðili sem hefur helgað síðasta aldarfjórðung viðbragði við náttúruhamförum, bæði hérlendis og erlendis, og sem sjálfboðaliði sem hefur á undanförnum dögum tekið þátt í stjórnun aðgerða þá tel ég að við séum nú að upplifa atburði á skala sem við höfum ekki séð hér á landi í a.m.k. 50 ár. Mikilvægi þess að við höfum öfluga vísindamenn og að við höfum fjárfest í mælitækjum kemur vel í ljós þessa dagana og þekking á því sem er að gerast neðan jarðar eykst með hverjum degi. Viðbragðskerfi okkar hér á landi er einstakt á heimsvísu og það hefur sýnt sig á síðustu dögum hversu öflugt það er að byggja upp kerfi þar sem sjálfboðaliðar vinna þétt saman í þágu þjóðar. Grindavík var rýmd á mettíma og þar sýndi sig hversu mikilvægt það er að við leggjum vinnu í að búa til viðbragðsáætlanir. Undanfarna daga hafa íbúar beðið þolinmóðir eftir því tækifæri sem gafst í dag, að komast til þess að sækja nauðsynjar og gæludýr. Allar ákvarðanir sem hafa verið teknar undanfarna daga hafa ávallt verið með öryggi íbúa og viðbragðsaðila að leiðarljósi.
Því miður er það þannig að við erum að sjá að eyðileggingin í Grindavík er mikil og alls ekki allar skemmdir augljósar enn. Fram undan er mikil vinna en við megum ekki gleyma því að við erum enn þá í miðjum atburði. Landið er enn að síga og gliðna auk þess sem gos getur átt sér stað hvenær sem er og þá er mikilvægt að við setjum allan forgang í að verja þá krítísku innviði sem eru í hættu svo að afleiðingar þessara náttúruhamfara hafi ekki stórtæk áhrif langt út fyrir Grindavík, heldur líka um allt Reykjanes.
Ég verð að segja að ég er djúpt snortinn yfir því hversu mikinn samhug íslenska þjóðin hefur sýnt Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum. Enn og aftur sýnum við Íslendingar hversu samheldin við erum þegar á reynir. Nú er mikilvægt að við á Alþingi sýnum íbúum Grindavíkur að sú samheldni og samstaða sem er í samfélaginu nái inn á Alþingi. Við munum þurfa að forgangsraða vinnu okkar hér inni til að afgreiða þau fjölmörgu mál sem tryggja stuðning, bæði til stutts og langs tíma, til íbúa Grindavíkur. Auk þess þurfum við að huga að mögulegri uppbyggingu og framtíð Grindavíkur. Í dag þurfum við að slá skjaldborg um íbúa Grindavíkur og verja þau í þeim ólgusjó tilfinninga og erfiðleika sem þau munu upplifa næstu daga, næstu vikur, næstu mánuði.