vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram hjá kollegum mínum á undan mér. Við í Flokki fólksins styðjum heils hugar allar varnir fyrir Grindavík og alla uppbyggingu til að reyna að koma í veg fyrir frekara tjón. Að sjálfsögðu stöndum við með Grindvíkingum. Þau eru ótrúleg og hafa sýnt ótrúlegt æðruleysi og kjark og það er ánægjulegt að sjá að núna hefur fólkið okkar fengið að fara heim og sækja kannski nauðsynlegustu hluti og það er að verða búið að bjarga flestöllum gæludýrum og dýrum líka. Nú bíðum við bara þess sem verða vill.
Hins vegar er engin launung á því að Flokkur fólksins er alfarið á móti því hvernig á að fjármagna þessar aðgerðir. Það er í rauninni frekar döpur ásýnd á því að neyðarástand skuli vera nýtt til þess að koma á hér aukaálögum á borgarana, leggja hér á aukaskattheimtu á borgarana algerlega að ástæðulausu. Það er engin ástæða til þess að ganga svona fram gagnvart almenningi þegar við höfum í rauninni næga fjármuni til að takast á við þennan vanda og þeir liggja algjörlega á lausu. Hér hefur verið bent á varasjóðinn okkar sem taldi nú 34,5 milljarða um síðustu áramót og mun telja 45 milljarða á næsta ári. Honum er ætlað að takast á við ófyrirséðar afleiðingar og ófyrirséðar hamfarir eins og við erum að fara að takast á við núna og erum að horfast í augu við núna. Þannig að ég velti því nú eiginlega fyrir mér: Til hvers er hann ef það er ekki til þess einmitt að koma í veg fyrir það að vera að leggja aukaálögur og aukaskatta á borgarana? Þess vegna hefði mér þótt afskaplega ánægjulegt ef stjórnvöld í dag, ríkisstjórnin, meiri hlutinn, hefðu tekið utan um þessar athugasemdir sem við höfum verið að leggja fyrir og komið með breytingar á áður unnu frumvarpi til að koma til móts við það sem hér um ræðir. Það er ekki góður bragur á því að koma með aukaskattlagningu á borgarana og klæða það í þann búning að við þurfum á því að halda til þess að geta varið Grindvíkinga og innviðina þar. Við þurfum það ekki. Þannig að um leið og ég segi að við munum ekki geta gert annað en að styðja frumvarpið segi ég að það væri mikið fallegra ef það væri ekki verið að koma með aukaskattheimtu í leiðinni.
Og ég segi líka: Það eru mér vonbrigði að einn stjórnarandstöðuþingflokkurinn skuli ekki standa með okkur öllum á þessu, sem er Samfylkingin. Það eru mjög mikil vonbrigði að þau skuli vilja leggja þessa aukaskattheimtu á borgarana og vera í rauninni komin í ríkisstjórn.