vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Þingflokkur Viðreisnar styður þetta frumvarp, styður þær aðgerðir sem hér er verið að festa í lög. Á tímum sem þessum er samstaðan mikilvæg og ég vona innilega að íbúar í Grindavík finni það að þjóðin stendur með þeim. Þessi lagasetning er fyrsta skrefið í þessa veruna en önnur mikilvæg skref sem snúa beint að íbúunum hljóta að vera næst á dagskrá hér á Alþingi því að það má ekki vera þannig að fjárhagsáhyggjur fólks bætist ofan á erfiða óvissuna núna.
Ég styð þessar aðgerðir sem við erum að færa í lög hér í kvöld og gleðst yfir því að Alþingi ætli að takast að setja þessi lög strax sama dag og umræða hófst. Það er auðvitað grundvallaratriði núna að tryggja almannahagsmuni vegna aðsteðjandi náttúruvár með því að vernda innviði á Reykjanesi. Við sem fylgdumst með fréttum í kvöld sjáum auðvitað að það blasir þegar við mikil eyðilegging og tilfinnanlegt tjón.
Mig langaði hins vegar að nefna að almennur varasjóður í fjárlögum hefur beinlínis það hlutverk að mæta ófyrirséðum útgjöldum ríkissjóðs vegna náttúruhamfara. Þessi varasjóður fyrir árið í ár geymir um 35 milljarða en ætluð útgjöld vegna varnargarðs og þeirra innviða sem ætlað er að verja eru samkvæmt frumvarpinu sjálfu um 2 milljarðar. Það fer að mínum dómi gegn markmiðum laga um opinber fjármál að ætla að sækja fjármunina með þessari skattheimtu sem ríkisstjórnin er hér að leggja til því að það er einfaldlega ekki þörf á því. Það er ekki þörf á því að fara í skattheimtu til að fara í þá vinnu, þá nauðsynlegu vinnu sem þetta frumvarp leggur til við að verja þá innviði sem ætlunin er að verja, því að til þess er hinn almenni varasjóður. Fjármunir fyrir svona ófyrirséð atvik eru geymdir sérstaklega þar, fyrir meiri háttar, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg útgjöld eins og þau sem við okkur blasa til að vernda mikilvæga innviði núna fyrir afleiðingum hugsanlegra eldsumbrota. Það blasir við að það er vel hægt að mæta þessum útgjöldum án þess að fara þessa leið því að löggjafinn hefur nefnilega búið þannig í haginn að við sem þjóð eigum sameiginlegan sjóð til að mæta þungum, erfiðum og óvæntum áföllum sem þessum. Nauðsynlegur flýtir við að afgreiða þetta mál hér í kvöld útskýrir skattinn að mínu viti ekki heldur því að þessar tekjur á ekki sækja fyrr en á næsta ári, 1. janúar næstkomandi. Ég vildi bara nefna þetta sem nefndarmaður í fjárlaganefnd því að mér finnst þetta sérstakt og óþarfi þar sem þessi sjóður er til og slá dálítið skakkan tón í samtalið.
Að öðru leyti en þessu styð ég þetta mál heils hugar og mun greiða atkvæði með því. Ég legg jafnframt áherslu á að við hljótum að vera að stíga fyrsta skrefið hér á Alþingi í kvöld. Okkar á Alþingi bíður það verkefni að mæta áhyggjum og mæta óvissu íbúa Grindavíkur og sýna þeim áfram í verki að við stöndum með þeim. Ég greiði atkvæði með þessu frumvarpi.