154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

mótvægisaðgerðir fyrir Grindvíkinga.

[13:33]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Í gær samþykktum við mikilvægt frumvarp um vernd innviða á Reykjanesskaga. Næsta verk hlýtur að vera að tryggja lífsafkomu fólks sem hefur þurft að flýja heimili sín. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra um hennar viðhorf til þessa verkefnis og um leið lýsa sýn okkar í Samfylkingunni. Við munum styðja stjórnvöld í málinu og leggja okkar af mörkum til að hægt verði að ganga hratt og örugglega í verkið því að Grindvíkingar þurfa skýr skilaboð núna sem veita þeim öryggi á óvissutímum.

Þegar svona stór hópur fólks missir atvinnu og húsnæði og félagslegt umhverfi sitt, allt á einu bretti um ófyrirséðan tíma af völdum náttúruvár, þá kallar það á sértækar aðgerðir til að tryggja afkomu. Það má segja margt um stöðu og þróun atvinnuleysistrygginga í landinu en þetta er einfaldlega ekki verkefni fyrir almennar atvinnuleysistryggingar. Þetta er sérstök staða sem kallar á sértækar aðgerðir, a.m.k. til tveggja eða þriggja mánaða á meðan fólk bíður eftir frekari vissu um framhaldið. Við getum ekki sagt við þá Grindvíkinga sem standa frammi fyrir þreföldu höggi, hafandi sumir hverjir misst atvinnu, húsnæði og félagslegt umhverfi sitt, að þeir eigi bara að sækja um atvinnuleysistryggingar. Það gengur bara ekki upp. Þetta eru 2.000–3.000 manns sem um ræðir, fólk sem veit ekki einu sinni hvar það mun búa í næsta mánuði, margt hvert. Andlega og félagslega áfallið er alveg nógu alvarlegt þó að fjárhagslegar áhyggjur bætist ekki þar ofan á. Við verðum því að eyða þessum áhyggjum strax og taka utan um þennan hóp hérna inni í sameiningu, t.d. með einhvers konar launastyrk í gegnum fyrirtækin þar sem ríkissjóður greiðir laun og launatengd gjöld upp að ákveðnu hámarki. Þar má t.d. miða við meðallaun a.m.k. til tveggja eða þriggja mánaða. Þannig gætum við tryggt lífsafkomu fólks og viðhaldið ráðningarsambandi þar til óvissunni léttir.

Hvað segir hæstv. forsætisráðherra um þetta?