154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

þróun varnargarða við Grindavík.

[13:53]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Þessi skýrsla snýst um afhendingaröryggi innviða orku og vatns. Það eru auðvitað ýmsar aðrar tillögur og það er þegar verið að vinna með þær, til að mynda hvað varðar vatnsból á þessu svæði og hvernig unnt sé að tryggja nægjanlegt aðgengi að neysluvatni. Aðalvatnsbólið liggur í lágum á því svæði og það er mikilvægt að kanna aðrar kaldavatnsuppsprettur til að tryggja nægt aðgengi að neysluvatni á þessu svæði. Önnur aðgerð sem auðvitað hefur verið fjallað um og er kannski ástæða þess að við viljum leggja ýmislegt á okkur til þess að verja orkuverið í Svartsengi er að það er hægt að flytja inn neyðarkyndikatla til þess að hita upp hús á þessu svæði, en það er dýr aðgerð og hún brennir mikilli olíu sem er ekki endilega umhverfisvænasta leiðin að fara. Það er ýmislegt sem um er fjallað í þessari skýrslu um innviði orku og vatns sem ekki tengist endilega sambærilegum aðgerðum og varnargörðunum en tengist ýmsum öðrum þáttum sem er nauðsynlegt að vera vakandi fyrir til þess að tryggja þessa innviði.